14.12.06

Aðventuljós

Aðventuljósið er komið í gluggann. Pabbi fékk þetta ljós í jólagjöf frá Sísí og Halla fyrir mörgum, mörgum árum. Ætli þau séu ekki farin að nálgast 30. Hann hélt mikið uppá ljósið, og hafði kveikt á því í glugganum hjá sér frá því að aðventa hófst og stundum fram undir páska. Ljósið hefur lýst upp jólin hjá mér síðan hann flutti í Sunnuhlíð. Það hefur aldrei bilað, og ég hef aldrei þurft að skipta um peru, sem er eins gott, því ég get ekki ímyndað mér að það væri auðvelt að nálgast varaperu í svona gamalt ljós.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég held það séu alltaf eins perur í þessi ljós og þær fást víða hér. Ef klikkar máttu hafa samband