14.10.06

Sauðfé



Jón bóndi.
Haustmorgunn einn fyrir sextíu árum vakti mamma mig með orðunum: "Hver eru komin!" Þetta reyndust vera Gimba og Hrússi, tvö stálpuð lömb, gjöf frá Elíasi móðurafa mínum. Kannske hafa þau átt að vera í matinn fyrir okkur, en þau urðu upphaf sauðfjáreignar fjölskyldunnar í Skriðu. Með árunum fjölgaði hópnum í þrettán. Pabbi hafði óbeit á tölunni þrettán, en ef hann bætti fleiri kindum við drápust alltaf einhverjar þeirra yfir veturinn þangað til þær voru aftur þrettán. Eitt haustið setti hann tólf kindur á, en maður platar ekki forlögin. Í desember átti ein gimbrin óvænt lausaleikslamb svo þær voru aftur þrettán.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Skemmtileg saga og frábær mynd