Pússluspil
Á hverju kvöldi í fleiri mánuði hef ég farið á vef sem kallast Jigzone, og gert pússluspil dagsins. Þetta tekur svona 5-6 mínútur, og er ómissandi (finnst mér). Það er sagt að maður eigi að halda heilasellunum í þjálfun til að forðast andlega hrörnun, svo ég hef afsökun fyrir þessari einkennilegu áráttu.

2 ummæli:
Ómægod.
Nú er ég hooked... tók mig að vísu aðeins lengur en 5-6 mínútur...
Þú ert ægileg, ég stalst til að kíkja inn á hlekkinn og fékk upp púsl sem ég að sjálfsögðu þurfti að prófa. Og Framkvæmdastjórinn kom að mér. Sem betur fer hló hann bara og sagði að þetta ætti betur við heima. En ég stenst aldrei púsl eða krossgátur.
Skrifa ummæli