Eggjahæna
Við Ranný, (Rannveig Matthíasdóttir), í desember 1959.Þegar ég var 16 ára var ég fór ég til Svíþjóðar. Við vorum tvær frá Ísafirði, Ranný og ég. Ranný var eldri en ég, 19 ára, fluggáfuð og geysilega fyndin. Við hlógum svo mikið þetta ár að mér finnst ég hafa hlegið látlaust allan tímann sem ég var í Svíþjóð. Við vorum saman í herbergi og eitt kvöldið þegar við vorum að fara að sofa hlógum svo lengi að Ranný fékk krampa. Það sem okkur fannst svona geysilega fyndið var, ef ég man rétt, að önnur hvor okkar sagði að einhver hefði verið eins og eggjahæna. Enn þann dag í dag fer ég að hlægja innvortis þegar mér dettur þetta orð í hug. Eggjahæna.

1 ummæli:
Yndisleg mynd.
Skrifa ummæli