skip to main |
skip to sidebar
Á jólunum er fortíðin nálægari en aðra tíma ársins. Minningar, bæði sætar og beiskar, fylla hugann, og dauðir hlutir, eins og eldgamalt jólaskraut, verða alltíeinu ákaflega hjartfólgnir. Þetta par hefur fylgt mér alla ævi. Þau stóðu á stofuskápnum í Skriðu á hverjum jólum, og sem betur fer eru þau enn til. Snjókarlinn glitraði meira í þá daga, og engillinn hafði næfurþunna vaxvængi. Mér fannst hann ævintýralega fallegur. Þetta eru kerti, bæði hafa kveik á kollinum, en þau eru alltof verðmæt til að það verði nokkurntíma kveikt á þeim.
1 ummæli:
Ég man eftir þeim. Skrítið hvernig hlutir geymast í huganum og "tilheyra" jólunum. Það er brún ávöl skál hjá Óðni sem hefur "alltaf" verið til og var full af nammi öll jólin.
Skrifa ummæli