Skriða
Sagan segir að þegar pabbi var rétt byrjaður að byggja húsið okkar hafi fallið aurskriða úr fjallshlíðinni yfir lóðina. Hann storkaði örlögunum, byggði húsið og nefndi það Skriðu. Við fluttum inn þegar ég var nýfædd og ég var alltaf "Ella í Skriðu." Þetta fannst mér sveitó, og notaði því Seljalandsvegur 54 sem heimilisfang. Það fannst mér heimsborgaralegra.
1 ummæli:
Kunnuglegt, nema steinvegginn niður með tröppunum vantar
Skrifa ummæli