Stóra tréð
Þegar við völdum húsið okkar var ég sérstaklega hrifin af geysi stóru og fallegu tré sem stendur á lóðinni. Þetta er "horse chestnut" - líklega nokkurra alda gamalt, og á vorin þegar það er í fullum skrúða er það þakið hvítum blómum. Seinna koma svo hneturnar, sem reyndar eru ekki ætar nema fyrir íkornana, sem safna þeim og fela til vetrarforða. Nú horfir illa fyrir trénu. Það er veikt, engin blóm eða hnetur, og laufið hrynur af því. Við fengum sérfræðing til að líta á það, og hann sagði okkur að skæð víruspest herjaði á þessa trjátegund, svo nú verðum við líklega að láta saga það niður. Það verður tómlegt þegar það fer, en fátt er svo með öllu illt, því garðurinn verður sólríkari á eftir.

Svona lítur tréð út núna, hálfnakið.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli