15.4.07

Sumarhiti

Allt í einu er komið sumar. Tuttugu stiga hiti, og sólskin. Garðurinn er allur að koma til, og mikill atgangur í smáfuglunum við hreiðurgerð. Ég fékk þá gáfulegu hugmynd að útbúa mér matjurtagarð í efsta horni garðsins. Það var áður í skugga, en er nú sólríkt eftir að stóra tréð féll. Við erum búin að stinga upp, hreinsa grjót og rætur og ég setti niður kartöflur í gær. Ég sáði líka radísum, spínati og salati í smá beð, og nokkrar blómkáls- og tómatplöntur bíða í gróðurhúsinu. Vonandi get ég gætt mér á heimaræktuðu salati, þ.e. ef sniglarnir verða ekki á undan mér að éta það allt.

14.4.07

Mont

Ég má til að monta mig aðeins yfir því hvað neglurnar á mér eru orðnar fínar, að maður tali nú ekki um nýja demantshringinn sem eiginmaðurinn gaf mér í tilefni 10 ára brúðkaupsafmælis.

7.4.07

Fritillaria

"Er Fritillarian þín sprungin út?" var ég spurð í leshópnum á mánudaginn. Judith er nefnilega mikil áhugakona um garðrækt, og afskaplega stolt af Fritillariunum sínum. Ég gat svarað játandi, því mín er sko líka sprungin út. Það komu þrjú blóm á hana í fyrra, en nú eru miklu fleiri knúppar og mér sýnist hún bara þrífast vel hjá mér. Mikið er ég stolt!

4.4.07

Gleðilega Páska!

Með þessum blómum óska ég ykkur gleðilegra páska. Myndina tók ég í garðinum í vorsólinni í dag.

3.4.07

Tíu ár

Tess í essinu sínu, að vanda.

Þann 3. apríl 1997 fórum við William til Sýslumannsins í Hafnarfirði og létum pússa okkur saman. Við eigum sem sagt tíu ára brúðkaupsafmæli í dag. Við héldum uppá daginn á okkar sérstaka hátt: fórum á ströndina með Tess, og komum við í Tesco á leiðinni og keyptum okkur samlokur í nesti. Tess át sitt nesti eins hratt og hún gat, og neytti síðan allra bragða til að fá William til að gefa sér samlokuna sem hann var að reyna að borða. Hann borðaði hana þessvegna svo hratt að hann fékk hiksta og brjóstsviða. Það var sól, en svalt við sjóinn, en William gleymdi húfunni og jakkanum í bílnum því hann var upptekinn við að leiða athygli Tess frá tveimur illvígum hundum sem voru á bílastæðinu. Þegar heim var komið vorum við, gamalmennin, (sérstaklega William) svo útjöskuð eftir daginn, að við hættum við að fara út að borða. Það verður því steikt nautahakk í hátíðamatinn, sem er það eina sem til er í frystinum. Kannske maður fái sér rauðvínsglas með matnum!

Fjölskyldan slappar af í sólstofunni eftir erfiðan dag.

25.3.07

Gróðurhús

Nú er kominn mikill vorhugur í mig, og í gær settum við upp "gróðurhús." Eiginlega er þetta nú bara plasttjald, en ég get staðið upprétt í því, og nota það fyrir græðlinga. Ég er líka búin að sá allskonar fræjum í bakka. Svo þegar vorið verður komið fyrir alvöru og allar þessar plöntur komnar út í garð, ætla ég að reyna að rækta tómata í gróðurhúsinu. Gaman, gaman.
Vonandi fjúka öll herlegheitin ekki út í buskann í næsta vestanroki.

23.3.07

Stressleysi

Við hjónakornin keyptum okkur forláta Stressless stóla á dögunum, til að sitja í fyrir framan nýja sjónvarpið. Þessir stólar eru einstaklega vel fallnir til að fá sér blund í, svo það má yfirleitt sjá okkur tvö steinsofandi í stólunum okkar, meðan Tess sefur endilöng í gamla IKEA sófanum mínum.

3.3.07

Tunglmyrkvi

Tunglmyrkvi var vel sýnilegur í heiðskýru veðri í kvöld. Ég tók náttúrulega mynd af fyrirbærinu. Mitt vandamál er, að þegar ég smelli af skek ég myndavélina ósjálfrátt, svo þetta er útkoman. Mér finnst fyrirbærið miklu merkilegra á myndinni en það var í raunveruleikanum!

1.3.07

SJ07 MWW

Nýji bíllinn hans Williams var afhentur í dag. Við fórum inní Glasgow og sóttum hann um hádegið, og svo fórum við aftur klukkutíma seinna og sóttum motturnar sem áttu að fylgja og ventilhettu. Eflaust eigum við eftir að fara nokkrum sinnum enn, því allt er grandskoðað, hver einasta skrúfa og muttering skal vera í sínum stað og allt verður að virka nákvæmlega samkvæmt bókinni sem fylgdi.

17.2.07

Af fiðrildum


Af fiðrildunum tveimur sem hafa verið í vetrardvala hér hjá okkur er það að frétta að annað þeirra vaknaði í gær, og hefur verið að flögra um í sólstofunni. Hitt sýnir ekki lífsmark, og líklega verðum við að jarða það. Þessi fiðrildi sjást venjulega flögrandi um síðsumars. Lílega eyða þau vetrinum sem egg, vorinu og sumrinu sem maðkar og gerast svo fiðrildi í júlí og ágúst. Það er eitthvert rugl í náttúrunni. Gróðurhúsaáhrif?

12.2.07

Tess níu ára

Fjölskyldan hélt upp á níu ára afmæli Tess í dag. Ég bakaði hundakex og útbjó rjómatertu og við fórum í góðan göngutúr. Veðrið var gott og það er farið að bóla á vorboðum í skóginum.




5.2.07

Tvätta bh

Sumarið 1960 vann ég á hóteli í Svíðþjóð og leigði risherbergi hjá vingjarnlegum eldri hjónum. Þarna bjó líka sænsk sveitastúlka. Ekki man ég hvað hún hét, en hún var geysilega viðkvæm og grét mikið. Við deildum baðherbergi, og á hverju kvöldi hafði hún þann sið að þvo brjóstahaldarann sinn í vaskinum og hengja hann til þerris til að geta farið í hann hreinan á morgnana. "Jag måste tvätta be ho" sagði þessi þrifna stúlka, og þessi orð hennar koma oft upp í huga mér þessa dagana. Þannig er að ég fór í bæinn fyrir hálfum mánuði og keypti mér forláta brjóstahaldara. Ég lét taka mál, og þessi góða flík passar svo vel og er svo þægileg að ég get ekki hugsað mér að fara í neinn af mínum gömlu. Ég renni þennan nýja þessvegna upp í vaskinum á kvöldin, og það mun ég gera þangað til ég á leið í kaupstað aftur og get keypt mér annan alveg eins.

3.2.07

Ólukkans gigtin

Ég er búin að vera svo til einhent í margar vikur, með frosna vinstri öxl og sáran verk í handleggsvöðvum. Ég hélt að þetta myndi líða hjá, en gafst upp og fór til læknis. Ég kom heim með sterk verkjalyf og tilvísun til sjúkraþjálfara, sem afhenti mér blað með nokkrum æfingum. Ég fór einusinni til sjúkraþjálfara heima, og ef ég man rétt voru notaðir hitapúðar og hljóðbylgjur, en hér er ekki nein slík hátækni. Ég hef verið að reyna við æfingarnar, og er nú með harðsperrur í hálsinum. Það er ekkert gaman að vera gömul. Það er sárt.

29.1.07

Íkorni

Við misstum mikið þegar stóra hnetutréð féll, en ekki nánda nærri eins mikið og íkornarnir sem lifðu á hnetunum. Þessvegna setjum við daglega hnetur í þar til gerðan stauk, og það er gaman að fylgjast með þeim. Fyrst éta þeir fylli sína, en svo upphefst mikil forðasöfnun. Það er hlaupið burtu með hneturnar, eina í einu, og þær grafnar kyrfilega í blómabeðin. Þeir eru of styggir og birtan ekki nógu góð til að taka nærmynd, en ég get vonandi náð betri mynd en þetta.

28.1.07

Vetrargosar

Þó janúar sé enn ekki liðinn eru fyrstu vorboðarnir farnir að stinga upp kollinum.

26.1.07

Dýravinir


Tvö fiðrildi hafa tekið sér vetursetu hjá okkur. Annað situr á gólfinu í sólstofunni, hitt hangir á hvolfi á bílskúrsloftinu. Bæði eru í vetrardvala, og við gerum okkar besta til að trufla þau ekki. Fiðrildið sem situr á gólfinu vaknar stundum og flytur sig til, og við færum þá kollinn sem verndar það fyrir því að við stígum óvart á það. Nei, við erum sko ekki "normal."

21.1.07

Frostrós

Ég er búin að eiga þessa rós í ein sex ár, og hún stendur yfirleitt í blóma frá því í júní og fram í október, en í ár hefur það greinilega alveg farið framhjá henni að það er vetur. Hún er þakin knúppum.

19.1.07

Subaru Impreza árgerð 1997

Bíllinn minn er bráðum tíu ára, og ekinn 34.996 km. Leshringur einu sinni í mánuði, tannlæknir tvisvar á ári. Annað ekki. Það eru einu ferðirnar sem ég fer ein. Annarra erinda förum við alltaf bæði og notum þá Williams bíl. Ég læt mig hafa það, þó mér finnist hann keyra eins og gamalmenni, því ef ég keyri situr hann stynjandi og emjandi við hliðina á mér. Honum finnst ég nefnilega afleitur bílstjóri. Mér þykir þetta leitt, því ég hef gaman af að keyra, en hvað gerir maður ekki fyrir heimilisfriðinn.

18.1.07

Snjór

Eftir alla rigninguna kom snjórinn. Þetta var útsýnið út um gluggann á kompunni minni í dag. Það er hláka núna, slabb á morgun.

16.1.07

Mitochondrial DNA

"A person’s maternal ancestry is traced by mitochondrial DNA or mtDNA for short. Both men and women possess mtDNA, but only women pass it on to their children.
So we all inherit our mtDNAs from our mothers, but not from our fathers. Your mother inherited it from her mother, who inherited it from hers, and so on back through time. Therefore, mtDNA traces an unbroken maternal line back through time for generation upon generation far further back than any written record."
---------------------
Elín Jónsdóttir 1942
--------------------
Ingibjörg Elín Elíasdóttir 1910-1958,
húsfreyja á Ísafirði.
--------------------
Guðríður Elísabet Jónsdóttir 1888-1911,
húskona í Hnífsdal.
--------------------
Kristín Gísladóttir 1866-1958,
verkakona í Súðavík.
--------------------
Hinrika María Pálsdóttir 1845-1884
húsmannskona í Súðavík.
--------------------
Guðrún Jóhannsdóttir 1815-1901
húsfreyja á Kirkjubóli, Ísafjarðarsókn.
-------------------
Elísabet Hinriksdóttir 1797-1850
húsfreyja á Dvergasteini í Súðavíkurhr., Ís., og víðar.
-------------------
Guðrún Pétursdóttir 1769-1834
húsfreyja í Seljalandi, Eyrarsókn í Skutulsfirði, Ís.
-------------------
Elísabet Tyrfingsdóttir 1739-1803
húsfreyja í Seljalandi, Eyrarsókn í Skutulsfirði, Ís.
-------------------
Guðrún Árnadóttir, f. Um 1705
húsfreyja á Sæbóli á Ingjaldssandi.
Ættuð úr Dýrafirði.
--------------------
Þrjúhundruð ár. Tíu konur. Allar fæddar við sjávarsíðuna á Vestfjörðum, allar – nema ein (ég) - bjuggu þar alla ævi. Í misgóðum húsakynnum börðust þær við kulda, fátækt, sjúkdóma og óblíð náttúruöfl. Þær ólust upp við signa ýsu, herta þorskhausa, saltfisk og tros með tólg. Súrt slátur og graut. Þær voru skapstórar konur, forkar til allrar vinnu, útsjónarsamar og úrræðagóðar.
Hér sit ég svo, endahnútur þessa stolta kvenleggs, með kviðinn sneisafullan af svínakjöti og kjúklingi, sósum og sætindum, í trássi við það sem meðfæddir arfberar vita að hæfir mér best. Má ég biðja um soðna ýsu og hamsatólk, takk!