Dýravinir
Tvö fiðrildi hafa tekið sér vetursetu hjá okkur. Annað situr á gólfinu í sólstofunni, hitt hangir á hvolfi á bílskúrsloftinu. Bæði eru í vetrardvala, og við gerum okkar besta til að trufla þau ekki. Fiðrildið sem situr á gólfinu vaknar stundum og flytur sig til, og við færum þá kollinn sem verndar það fyrir því að við stígum óvart á það. Nei, við erum sko ekki "normal."


Engin ummæli:
Skrifa ummæli