17.2.07

Af fiðrildum


Af fiðrildunum tveimur sem hafa verið í vetrardvala hér hjá okkur er það að frétta að annað þeirra vaknaði í gær, og hefur verið að flögra um í sólstofunni. Hitt sýnir ekki lífsmark, og líklega verðum við að jarða það. Þessi fiðrildi sjást venjulega flögrandi um síðsumars. Lílega eyða þau vetrinum sem egg, vorinu og sumrinu sem maðkar og gerast svo fiðrildi í júlí og ágúst. Það er eitthvert rugl í náttúrunni. Gróðurhúsaáhrif?

Engin ummæli: