19.1.07

Subaru Impreza árgerð 1997

Bíllinn minn er bráðum tíu ára, og ekinn 34.996 km. Leshringur einu sinni í mánuði, tannlæknir tvisvar á ári. Annað ekki. Það eru einu ferðirnar sem ég fer ein. Annarra erinda förum við alltaf bæði og notum þá Williams bíl. Ég læt mig hafa það, þó mér finnist hann keyra eins og gamalmenni, því ef ég keyri situr hann stynjandi og emjandi við hliðina á mér. Honum finnst ég nefnilega afleitur bílstjóri. Mér þykir þetta leitt, því ég hef gaman af að keyra, en hvað gerir maður ekki fyrir heimilisfriðinn.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þú fékkst allavega eina aukaferð af því ég kom í haust. Gott að vita að ég gaf þér og bílnum smáæfingu :).