12.8.09

Slug

Hér hefur verið votviðrasamt og sniglar hafa stækkað ógurlega. Svona kvikindi getur kálað heilli stjúpu á klukkutíma. Þetta kallast "slug" - en þeir sem eru með skel á bakinu (kuðungar) kallast "snails".


Neðst á myndinni: táin á stígvélinu mínu.

6.8.09

Tvær úr fuglalífinu

Ég er í baði (blátittlingur) ...

... og ég var í baði og er að þurrka mig í sólinni! (þröstur).

Úr daglega lífinu

Húsbóndinn er safnari og fleygir helst engu. Það er sama hvort um er að ræða tóma pappakassa eða ryðgaðar mutteringar; timbur eða múrsteina - eða eldgamla skó. Það er allt geymt. Þetta er viðkvæmt mál - ég er löngu hætt að spyrja til hvers eigi að nota þetta drasl. Það gladdi mig þessvega mikið þegar hann nefndi af fyrra bragði að fara með hlass í gámastöðina. Hlassið var reyndar tilbúið, heilmikill haugur rétt innan við bílskúrsdyrnar, og búinn að vera þar lengi. Þar á meðal voru tveir ónýtir tölvuprentarar. Hann byrjaði á að hirða af þeim allar snúrur og kapla (aðdrei að vita!) 20-30 ára gamlar tengingar, geysi nytsamt nú til dags, þegar allt er USB eða þráðlaust! Þegar ég svo skellti prentaranum inní bílinn kom í ljós að hann var enn með blek, og það lak. Mega paník, húsbóndinn hoppandi (ekki hoppandi reiður - heldur hoppandi upp og niður) og mér auðvitað kennt um. Hann greip prentarann og makaði sjálfan sig út - og bílhurðina. Sem betur fer hélt ég ró minni, og náði í vogt vatn í fötu og tusku, og tókst að þrífa blekið úr bílsætinu. Og svo var farið í Gámu.

2.8.09

Tess

Í dag er eitt ár síðan Tess var svo fárveik að við héldum að við myndum missa hana. Hér er hún í essinu sínu, í göngutúr seinni partinn í dag.

Fiðrildi



Á efri myndunum, red admiral. Á neðstu myndinni, painted lady. Fiðrildin halda mikið uppá þessa plöntu enda kallast þetta butterfly plant.

1.8.09

Tómt batterí

Mér finnst gott að sofna útfrá einhverskonar rausi, helst sagna eða ljóðalestri, og á lítið tæki sem bæði er útvarp og MP3 spilari. Ég sæki mér podcasts á netið til að hlusta á ef ekkert er í útvarpinu sem hentar. Í gær rakst ég á audiobooks.net, netútvarp með upplestri, en það er bara hægt að hlusta á það gegnum tölvu. Ekkert mál, fartölvan tekin með í rúmið og stillt uppá náttborðinu. Það var ljóðalestur. Ekkert er betra. Lág, hljómfögur rödd, taktur, meiningarlaus orð. Ég sofnaði samstundis. Þegar ég vaknaði var tölvan dauð. Batteríið galtómt. Ég er að hlaða núna.

29.7.09

Gamla skrukkan

Það er allt farið að bila. Ég er eins og gamalt heimilistæki, komið að fótum fram. Endalausar viðgerðir. Flestir myndu endurnýja. Árið byrjaði með súkraþjálfun til að koma öxl og handlegg í lag. Svo tóku við árlegar tékkanir sýnatökur og áhyggjur af því - auk þess sem ég hef verið í meðferð hjá húðsjúkdómalækni vegna sólskemmda í andliti. Langvinnur þurr hósti reyndist vera aukaverkun af blóðþrýstingslyfi, og er að skána, en annað augað hefur mikið verið að pirra mig, og ég er búin að fá þrennskonar dropa og krem, enn án árangurs. Heyrnin er farin að bila líka (segir William). Varta á kviðnum á mér tók uppá því að bólgna, og í dag var hún fjarlægð og send í ræktun. Nú er ég með útsaumaðan maga og stóran plástur. Það er greinilegt að elli kerling er að ná yfirhöndinni.

26.7.09

Sunnudagsblogg

Þetta er bláasta bólm sem ég hef séð. Mikið vildi ég eiga blússu í þessum lit.

Árið 2000 létum við garðyrkjumann gera upp garðinn, og meðal plantnanna sem hann setti niður var grastoppur. Hann sagði þetta vera "interesting" plöntu, og þar sem grös allskonar hafa verið í tísku í görðum hef ég látið þennan topp eiga sig þar sem hann var. Svo var það í gær að ég var að stússa í beðunum að ég sá þetta fallega gula blóm. Eftir 9 ár er grastoppurinn sem sé farinn að blómstra! Það er sko "interesting"!

Fuglarnir eru orðnir svo þungir að þeir brutu lendingarprikið. Ég myndaði viðgerðina út um eldhúsgluggann.

Hvenær verð þeir RAUÐIR? Vita þeir ekki að þeira eiga að vera rauðir?

25.7.09

Tækjagleði

Vinkona mín, á áttræðisaldri, er afskaplega tækjaglöð. Ef hún sér eitthvað sem henni finnst sniðugt er það umsvifalaust keypt, en vandamálið er að hvorki hún né eiginmaður hennar hafa hugmynd um hvernig eigi að nota tólin. Þau eru nýlega búin að kaupa innanhúss net, fyrir síma, sjónvarp og tölvu, sem Sky setti upp, og eru með stóra tölvu sem einungis er notuð til að skoða vefsíður um skemmtiferðaskip, því þau fara gjarnan í slíkar reisur. Þau eru líka nýbúin að kaupa geysimikið sjónvarpstæki, einar 47 tommur, og Skype (ósett upp enn.)
Ég var boðin í morgunkaffi til hennar í gær, og visst strax að eitthvað bjó undir. Fyrst voru mér sýndar myndir úr nýlegri Indlandsferð. Geysimargar, og ekki góðar. Hún á fína digital vél, en kann ekki að færa myndir á tölvuna, og notar því gamla filmuvél. Myndirnar lét hún framkalla í Indlandi, og það var ekki vel gert, svo allir voru grænir á litinn.
Aðalástæðan fyrir kaffiboðinu reyndist hinsvegar vera sú að hún hafði keypt sér litla "netbook" fartölvu. Hún vildi nota hana fyrir email, en ekkert gerðist þegar hún klikkaði á "receive mail.". Tölvan hafði sjálfkrafa fundið og tengt sig við innanhússnetið, en "vissi" ekki hvert hún ætti að sækja póstinn. Ég hjálpaði henni við að setja Outlook Express upp til að sækja póst á Sky, sem var alls ekki einfalt, en tókst að lokum. Ég benti henni líka á að það þarf að hlaða batteríið á fartölvunni til að hægt sé að nota hana til frambúðar. Hún var afskaplega þakklát fyrir aðstoðina, og þegar ég kvaddi sagði hún að nú gæti hún tekið litlu tölvuna með sér í öll sín ferðalög og tékkað póstinn sin hvar sem hún væri. Ég passaði mig á að segja henni ekki að málið væri nú kannske ekki alveg svo einfalt.

18.7.09

Síminn minn

Ég er búin að eiga farsímann minn í fjögur ár, svo hann er orðinn gamaldags. Ég hef sjaldan notað myndavélina á honum, því ég hef alltaf talið mig eiga betri vélar. Svo fór ég að rannsaka stillingarnar, og sé að þetta er bara sæmilegasta myndavél. Hún var bara ekki stillt á "fine" svo myndirnar komu illa út. Þessa mynd tók ég áðan, í morgungöngunni okkar Tess. Þar sem litla Sony vasamyndavélin mín er biluð, og nýja vélin með aðdráttarlinsunni er stór, er auðvitað eðlilegast að nota símann, sem er alltaf tiltækur.

17.7.09

Græn paprika


Ég á ekki bara tómataplöntur - ég á líka tvær paprikur. Það verður alldeilis salad veisla þegar uppskeran hefst!

16.7.09

Hásumar er nú

Garðmynd. Þetta er "nýji" garðurinn - við bílastæðið.
Blómahaf.
Svo tekur maður fram jólaskrautið í júlí. Bjöllustrengurinn er ætlaður sem kattarvörn. Þegar kötturinn stekkur á fuglinn lendir hann vonandi fyrst á bjöllunum til að vara fuglinn við.

Rós.
Og grænir tómatar. Ef þeir fara ekki að roðna verð ég að finna uppskriftina hennar mömmu af súrsuðum grænum tómötum. Ef ég man rétt er hún í eldgamalli bók sem heitir Grænmeti og ber allt árið.

10.7.09

Lífsins lystisemdir

Þvílíkur dásemdarinnar dagur hefur þetta verið. Glaða sólskin og 18 stiga hiti. Ég var við garðyrkjustörf til hádegis, en sat svo í garðinum og las reyfara seinnipartinn. Tók aðeins hlé og bakaði vöfflur með þrjúkaffinu, og fór svo með Tess í smá skógargöngu. Svo var sóttur kínamatur í kvöldmatinn (mikið uppáhald húsbóndans) og með matnum glas af köldu hvítvíni. Jamm og jæja. Lífið er stutt. Best að njóta þess.

4.7.09

21.6.09

Sumardagar

Eru allir búnir að gleyma mér? Það er mátulegt á mig, ég hef ekki komið hér lengi. Það koma stundum tímabil í lífinu sem slá mig útaf laginu. En svo gengur þetta yfir, óttinn sem var að yfirbuga mig reyndist ástæðulaus, og það birtir aftur. Smátt og smátt.
Hér hefur sumarið verið með ólíkindum gott. Sól og blíða dag eftir dag. Rigningar bara mátulega til að vökva. Garðurinn er í blóma, og smáfuglarnir eru farnir að koma með ungahópa í matinn. Það er um að gera að kynna þeim mötuneytið. Við gefum þeim blandað fuglafóður, sólblómafræ, brauð, epli – og þurrkaða orma! Aðalvandamálið eru kettir nágrannans, sem eru farnir að halda til í garðinum, í felum undir runnum. Svo stökkva þeir á saklausa fugla, mýslur og íkorna. Við hlaupum út oft á dag til að reka þá í burtu.
Tess, sem hér áður fyrr sá um að halda kattavandamálinu í skefjum, er orðin ansi gigtveik og slæm til gangs, en matarlysin er í góðu lagi, og hún er alltaf jafn spennt að fara út í göngu. Úthaldið er ekki eins gott.
Á miðvikudaginn ætla ég að leggja land undir fót, og skreppa í heimsókn til Íslands. Það er orðið alltof langt síðan ég hef séð fólkið mitt heima.

13.5.09

Íkornastríð


Húsbóndanum er mein illa við íkorna. Þeir eru nefnilega snillingar við að rupla hnetunum sem eru ætlaðar fuglunum, og þeir eru svo sterkir í kjálkunum að þeir naga vírnetið í fóðurstauknum til að ná hnetunum út. William hleypur út oft á dag til að reka íkornana burtu og hann eyðir löngum stundum í að gera við netið, með vírspottum og litlum verkfærum, en um leið og staukurinn er hengdur upp aftur birtist Korni litli. Ýmis ráð hafa verið reynd. Tómar tveggja lítra gosflöskur hafa verið hengdar á fóðurstatívið, til að hræða íkornann, og það nýjasta, smyrja prikið sem fóðrið er hengt á með matarolíu. Þá geta þeir ekki klifrað upp, og það er ansi kómiskt að sjá þá reyna. En það dugar ekki lengi, olían þornar upp, eða þurrkast af á kviðnum á klifrandi íkornum. Ég á afskaplega bágt með að taka þátt í þessu íkornastríði, því mér finnst þeir svo sætir!

9.5.09

Það rignir

Það hefur verið leiðindaveður hér í marga daga. Rok og rigning og miklu kaldara en fólk hér á að venjast á þessum tíma árs. Þessa stundina er eins og hellt úr fötu, en hérlendir myndu segja að það rigndi hundum og köttum.
Ég eyddi mörgum stundum í garðinum í mars og apríl, og upprætti allt illgresi, snyrti beð og sáði blómafræjum. Svo kom votviðrið og allur gróður hefur tekið hömlulausan kipp, vaxið úr sér og dottið um koll. Það á jafnt við um garðplöntur, gras og illgresi. Það verður mikið verk að koma lagi á málin þegar vindinn lægir og það styttir upp. Þangað til hef ég góða afsökun til að hafa það bara náðugt og lesa bók, eða leika mér á tölvunni. Það er ekki hundi út sigandi.

28.4.09

Tvær telpur


Þessi mynd var í kassa með myndum sem hafa fylgt mér alla ævi, allt frá Ísafjarðarárunum. Þetta eru gamlar fjölskyldumyndir sem flestar voru í eigu mömmu og pabba. En hvaða telpur eru þetta? Það hafði ég ekki hugmynd um. Aftan á myndinni stendur Laufey og Elinóra Magnúsdætur, en það hjálpaði ekki, ég kom þeim ekki fyrir mig.

Ég fór því á tölvuna og fletti þessum nöfnum upp í Íslendingabók og fékk svar. Þetta eru elstu dætur Magnúsar Hálfdánssonar, bróður Elíasar Hálfdánssonar afa míns.
Laufey Magnúsdóttir, fædd 13. mars, 1910. Dáin 1. mars 1928, tæpra átján ára. Elinóra Magnúsdóttir, fædd 7 des. 1912. Dáin 10. maí 1935, 22 ára. Þriðja systirin, Hrefna, fæddist 1913 og dó 1925.
Laufey er fædd sama ár og mamma, þær hafa kannske þekkst sem börn. Magnús og Halldóra kona hans eignuðust síðan fjögur börn sem öll lifðu og áttu afkomendur. Það fólk þekki ég ekki.

21.4.09

Klifrað í trjám

Handan við girðinguna okkar er gangstígur, og fyrstu árin hér var þó nokkur ófriður af honum. Unglingahópar fóru þarna um og skemmtu sér við að fleygja drasli inní húsagarða eða henda eggjum í glugga, svo við gróðursettum skjólgarð með hraðvöxnum trjám milli okkar og stígsins.
Sem betur fer eru unglingarnir líklega uppteknir við aðra skemmtan þessa dagana, svo það er orðið friðsælt hér, en trén hafa vaxið og voru orðin einir 5 metrar á hæð. Okkur fannst kominn tími til að taka af þeim toppana. Í gær var svo hafist handa. William klifraði upp í háan stiga og ég stóð og studdi og handlangaði verkfærin. Því miður eigum við engin tól sem henta, svo notast var við greinaklippur og gamla sög, ættaða frá Ísafirði. Pabbi notaði þessa sög til að saga sviðahausa, og hún er ansi bitlaus. Þar sem William þurfti að halda sér með annarri hendi hafði hann bara eina lausa til að saga, svo þetta var mikið verk og tók langan tíma. Á endanum tókst þó að saga af toppa á stærð við meðal jólatré af tveimur trjám. Tvö eru eftir, því við vorum orðin uppgefin, enda komin af léttasta skeiði bæði tvö. Í dag höfum við svo hvílt lúin bein.
Myndir er af trjánum áður en við réðumst á þau. Girðingin er tæplega 2m há. Rauða strikið sýnir hvað þau eru stór núna.

20.4.09

Loksins!

Loksins náði ég sæmiegri mynd af hegranum sem býr á árbakkanum. Ég er búin að gera margar tilraunir gegnum árin, en hann hefur alltaf flogið í burtu áður en ég hef verið búin að stilla aðdráttinn. Í gær var hann óvenju rólegur.