Tækjagleði
Vinkona mín, á áttræðisaldri, er afskaplega tækjaglöð. Ef hún sér eitthvað sem henni finnst sniðugt er það umsvifalaust keypt, en vandamálið er að hvorki hún né eiginmaður hennar hafa hugmynd um hvernig eigi að nota tólin. Þau eru nýlega búin að kaupa innanhúss net, fyrir síma, sjónvarp og tölvu, sem Sky setti upp, og eru með stóra tölvu sem einungis er notuð til að skoða vefsíður um skemmtiferðaskip, því þau fara gjarnan í slíkar reisur. Þau eru líka nýbúin að kaupa geysimikið sjónvarpstæki, einar 47 tommur, og Skype (ósett upp enn.)
Ég var boðin í morgunkaffi til hennar í gær, og visst strax að eitthvað bjó undir. Fyrst voru mér sýndar myndir úr nýlegri Indlandsferð. Geysimargar, og ekki góðar. Hún á fína digital vél, en kann ekki að færa myndir á tölvuna, og notar því gamla filmuvél. Myndirnar lét hún framkalla í Indlandi, og það var ekki vel gert, svo allir voru grænir á litinn.
Aðalástæðan fyrir kaffiboðinu reyndist hinsvegar vera sú að hún hafði keypt sér litla "netbook" fartölvu. Hún vildi nota hana fyrir email, en ekkert gerðist þegar hún klikkaði á "receive mail.". Tölvan hafði sjálfkrafa fundið og tengt sig við innanhússnetið, en "vissi" ekki hvert hún ætti að sækja póstinn. Ég hjálpaði henni við að setja Outlook Express upp til að sækja póst á Sky, sem var alls ekki einfalt, en tókst að lokum. Ég benti henni líka á að það þarf að hlaða batteríið á fartölvunni til að hægt sé að nota hana til frambúðar. Hún var afskaplega þakklát fyrir aðstoðina, og þegar ég kvaddi sagði hún að nú gæti hún tekið litlu tölvuna með sér í öll sín ferðalög og tékkað póstinn sin hvar sem hún væri. Ég passaði mig á að segja henni ekki að málið væri nú kannske ekki alveg svo einfalt.

1 ummæli:
þetta minnir mig á einn mann sem ég þekki og er sífellt að spá í 'internetið' 'serverinn' og 'netpóstinn' ... sá hinn sami er í símennt hjá undirritaðri, með misgóðum árangri...
Skrifa ummæli