21.4.09

Klifrað í trjám

Handan við girðinguna okkar er gangstígur, og fyrstu árin hér var þó nokkur ófriður af honum. Unglingahópar fóru þarna um og skemmtu sér við að fleygja drasli inní húsagarða eða henda eggjum í glugga, svo við gróðursettum skjólgarð með hraðvöxnum trjám milli okkar og stígsins.
Sem betur fer eru unglingarnir líklega uppteknir við aðra skemmtan þessa dagana, svo það er orðið friðsælt hér, en trén hafa vaxið og voru orðin einir 5 metrar á hæð. Okkur fannst kominn tími til að taka af þeim toppana. Í gær var svo hafist handa. William klifraði upp í háan stiga og ég stóð og studdi og handlangaði verkfærin. Því miður eigum við engin tól sem henta, svo notast var við greinaklippur og gamla sög, ættaða frá Ísafirði. Pabbi notaði þessa sög til að saga sviðahausa, og hún er ansi bitlaus. Þar sem William þurfti að halda sér með annarri hendi hafði hann bara eina lausa til að saga, svo þetta var mikið verk og tók langan tíma. Á endanum tókst þó að saga af toppa á stærð við meðal jólatré af tveimur trjám. Tvö eru eftir, því við vorum orðin uppgefin, enda komin af léttasta skeiði bæði tvö. Í dag höfum við svo hvílt lúin bein.
Myndir er af trjánum áður en við réðumst á þau. Girðingin er tæplega 2m há. Rauða strikið sýnir hvað þau eru stór núna.

Engin ummæli: