9.5.09

Það rignir

Það hefur verið leiðindaveður hér í marga daga. Rok og rigning og miklu kaldara en fólk hér á að venjast á þessum tíma árs. Þessa stundina er eins og hellt úr fötu, en hérlendir myndu segja að það rigndi hundum og köttum.
Ég eyddi mörgum stundum í garðinum í mars og apríl, og upprætti allt illgresi, snyrti beð og sáði blómafræjum. Svo kom votviðrið og allur gróður hefur tekið hömlulausan kipp, vaxið úr sér og dottið um koll. Það á jafnt við um garðplöntur, gras og illgresi. Það verður mikið verk að koma lagi á málin þegar vindinn lægir og það styttir upp. Þangað til hef ég góða afsökun til að hafa það bara náðugt og lesa bók, eða leika mér á tölvunni. Það er ekki hundi út sigandi.

Engin ummæli: