28.4.09

Tvær telpur


Þessi mynd var í kassa með myndum sem hafa fylgt mér alla ævi, allt frá Ísafjarðarárunum. Þetta eru gamlar fjölskyldumyndir sem flestar voru í eigu mömmu og pabba. En hvaða telpur eru þetta? Það hafði ég ekki hugmynd um. Aftan á myndinni stendur Laufey og Elinóra Magnúsdætur, en það hjálpaði ekki, ég kom þeim ekki fyrir mig.

Ég fór því á tölvuna og fletti þessum nöfnum upp í Íslendingabók og fékk svar. Þetta eru elstu dætur Magnúsar Hálfdánssonar, bróður Elíasar Hálfdánssonar afa míns.
Laufey Magnúsdóttir, fædd 13. mars, 1910. Dáin 1. mars 1928, tæpra átján ára. Elinóra Magnúsdóttir, fædd 7 des. 1912. Dáin 10. maí 1935, 22 ára. Þriðja systirin, Hrefna, fæddist 1913 og dó 1925.
Laufey er fædd sama ár og mamma, þær hafa kannske þekkst sem börn. Magnús og Halldóra kona hans eignuðust síðan fjögur börn sem öll lifðu og áttu afkomendur. Það fólk þekki ég ekki.

Engin ummæli: