22.5.06

Hundagönguhópurinn

Hópurinn hefur þynnst undanfarið. Þegar best var voru það oftast einir 10-12 hundar ásamt eigendum sem hittust daglega klukkan níu og gengu umhverfis opið svæði hér handan við ána. Nú erum við alltíeinu miklu færri. Hundar eru ekki eins langlífir og fólk og nokkrir hafa því miður helst úr lestinni. Sumir hundaeigendanna hafa flutt burtu eða farið að vinna allan daginn. Við sem eftir göngum vonum að nýjir félagar fari að bætast í hópinn, því þetta er skemmtilegur og að mér finnst ómissandi hluti tilverunnar hér.

21.5.06

Villtur hvítlaukur




Skóglendið í árgilinu er í miklum blóma þessa dagana, jörðin þakin hvítum blómum og mikill hvítlauksilmur í lofti. Þessi planta kallast nefnilega "wild garlic" og er líklega náskyld hvítlauk. Þessar myndir voru teknar í morgun.

20.5.06

Undraefni


Það kom pakki til mín í gær, afhentur af einkennisklæddum sendiboða. Mér varð ekki um sel þegar ég sá áletrunina "Dangerous materials - by road only." En þá mundi ég að ég tók þátt í könnun á netinu fyrir nokkru síðan (ég er alltaf að taka þátt í hinum og þessum könnunum vegna þess að þá finnst mér eins og að ég og mínar skoðanir skipti einhverju máli.) Þessi könnun var sérstaklega fyrir húsmæður, og spurningarnar vörðuðu hin ýmsu hreinsiefni fyrir klósett. Að lokum hafði ég verið spurð hvort ég myndi vera fús til að prófa nýtt undraefni, og var um leið eiðsvarin að segja ekki neinum frá framleiðanda eða innihaldi. Þarna var sem sé undraefnið komið.
Þegar ég las lýsinguna sá ég strax að hér var um kraftmikið efni að ræða. Það voru allskonar aðvaranir á flöskunni, en jafnframt loforð um undraverðan árangur. Allar bakteríur feigar, og klósettið yrði skínandi hvítt og eins og nýtt. Mér sýndist þetta efni frekar henta á almenningsklósettum eða hjá fólki sem sjaldan þrífur, en ætlaði samt að prófa efnið fyrir þá þó klósettin þrjú á heimilinu séu yfirleitt aldrei mjög skítug. En þegar William leit á innihaldslýsinguna leist honum engan veginn á, "it is bad for the seals" sagði hann. Hrærð hugsaði ég hvað ég væri nú heppin að eigan annan eins dýravin fyrir mann, þó ég viti ekki til þess að hann beri velferð selastofnsins meira fyrir brjósti en annarra sjávardýra. Ég hváði því, og hann tjáði mér að hann hefði verið að tala um "seals" = þéttiefni, kítti á samskeytum í pípulögninni. Nokkuð sem ég hef aldrei haft miklar áhyggjur af. Það verður því ekki úr neinni prófun á undraefninu ónefnda.

17.5.06

Menningarsnobb

Á mánudagskvöldið mættum við, sjö kerlingar úr leshópnum, heima hjá einni okkar, með nestiskörfur og ljóðabækur. Þessi árlegi siður byrjaði sumarkvöld eitt fyrir nokkrum árum, þegar hópurinn ætlaði að sjá Midsummernight's Dream uppfært í skrúðgarði einum hér nálægt, en Shakespeare leikhópurinn aflýsti sýningu vegna óveðurs. Það var því haldið heim til þeirrar sem næst bjó, köflóttur dúkur breiddur á stofugólfið og nestið snætt innandyra.
Þetta eru menningarlegar samkomur. Við tökum með okkur uppáhalds ljóð og lesum upphátt, eða skemmtilegan kafla úr góðri bók. Allar eru þessar konur (nema ég) miklar menningarkonur, sem stunda tónleika, óperu- lista- og leiksýningar af kappi. Þær vita því margt og þekkja alla sem máli skipta.
En . . . æ hvað ég sakna saumó.

13.5.06

Garðurinn í morgunsól

Laugardagur

Sólin skein glatt í dag, og ég var við garðyrkjustörf. William var innivið, með bæði sjónvarpstækin (stofu og eldhús) á fullu, og tölvuna stillta á veðbankasíðuna, því það voru úrslitaleikir bæði í ensku og skosku bikarkeppninni. Það varð að fylgjast með öllu, og vera tilbúinn að veðja á rétt lið. Á endanum tókst honum samt að tapa þremur pundum. Þeir eldast aldrei.

11.5.06

Eru skotar nískir? - 2

Við vorum boðin í brúðkaup í fyrra, sem haldið var í ráðstefnusal Háskólans í Sterling. Þegar gestir mættu var þeim vísað inná bar - þar sem drykkir voru seldir. Klukkutíma seinna var farið inní danssalinn, þar sem þrír skotapilsakarlar spiluðu af miklum krafti og gestir dönsuðu gömlu dansana. Seinna um kvöldið var gestum vísað í hliðarsal þar sem te, kaffi og hálfharðnaðar samlokur voru á hlaðborði. Hápunkturinn var svo brúðkaupsterta, sem við fengum öll smábita af (frítt). Þetta stakk óneitanlega í stúf við þau rausnarlegu glæsibrúðkaup sem tíðkast í minni fjölskyldu!

8.5.06

Eru skotar nískir?

Aðhaldssemi, sparsemi og nýtni. Passasemi. Fara vel með. Skotinn sem ég þekki best kemur hlaupandi þegar hann heyrir mig setja vatn í hraðsuðuketilinn. Grípur ketilinn og hellir helmingnum af vatninu í vaskinn. Ég hita víst stundum meira vatn en þarf í teið. Bruðl.

Túlipanar


Nú eru túlípanarnir mínir fallegir. Veðurspáin fyrir næstu daga er góð, svo vonandi get ég tekið sólstólinn út og setið og horft á þá.

2.5.06

Matar(ó)menning

Skotar eru ekki mikið fyrir hollustu, og eiga Evrópumet í hjarta, lungna, æða og hverskonar öðrum sjúkdómum sem stafa af óhollu matarræði og lélegum húsakynnum. Þeir éta franskar kartöflur með öllu, og djúpsteikja ótrúlegustu matartegundir. Stuttu eftir að ég kom hingað pantaði ég “seafood platter” á veitingahúsi við sjávarsíðuna, og hlakkaði til að fá ferskt fiskmeti. Mér brá í brún þegar diskurinn birtist, því ýsan, rækjurnar, humarinn og laxinn voru þakin raspi og djúpsteikt, og náttúrulega borin fram með frönskum. Brjóstsviðamatur!
Þekktastir eru Skotar þó fyrir að djúpsteikja pizzur og Mars súkkulaði. Mars bitanum er difið í deig áður en hann fer í djúpsteikingarpottinn. Ég get því miður ekki upplýst ykkur um hvernig þetta bragðast!
William er mikið fyrir franskar og fjárfesti í olíupotti, sem við höfum frammi í bílskúr. Þangað fer hann og steikir sínar kartöflur, sem hann hefur með flestum mat.

1.5.06

Book Club

Leshópurinn kom saman í morgun. Mæting var góð og allir höfðu lesið bókina. Eftir líflega umræðu var borið fram te og kex, því hér er heimabakstur svo til óþekktur.
Leshópurinn varð til fyrir sex árum, í framhaldi af bókmenntanámskeiði sem haldið var í nálægu þorpi, Kilmacolm. Síðan höfum við hitst fyrsta mánudag hvers mánaðar, og eftir 69 skipti og jafnmargar bækur erum við farin að þekkjast bísna vel. Ellefu kerlingar og þrír karlar, öll komin vel af léttasta skeiði. Ég sé um vefsíðuna, sjá tengil hér efst til hægri.

28.4.06

Besti dagur vorsins

Það var sól og blíða í dag og við eyddum deginum í garðvinnu. Nú er allt að koma til, vorið er loksins komið.

Alaskalúpína

Við söfnuðum nokkrum Alaskalúpínufræjum þegar við vorum heima á Íslandi í fyrra. Við vitum að það er engri þjóð greiði gerður með því að flytja inn útlenskar plöntur, sem kannske sá sér út um allt og útrýma náttúrulegum gróðri. Kannske varðar það við lög. En okkur finnst Alaskalúpína afskaplega falleg jurt og hún kann vel við sig í Skotlandi. Þessi, ásamt einum tíu öðrum, kom upp af fræjunum sem við sáðum. Þær eru nú óðum að lifna við eftir veturinn. Við vonum að þær dafni og breiði úr sér og að þær þeki Skotland bláum blómum.

27.4.06

Loff malakoff og Ella gamla lifir enn ...



Árleg læknisskoðun og myndataka fóru fram 3. apríl sl., og síðan hef ég verið á nálum að bíða eftir niðurstöðum vegna röntgenmyndanna. Þessa löngu bið kenndi starfsfólk spítalans tölvum (alltaf gott að geta kennt þeim um), en ég held að ég hafi hreinlega týnst í kerfinu. Í dag fékk ég svo loksins að vita að allt virðist í fínu lagi. Halelúja fyrir því.

25.4.06

Veðmálabrask

William er farinn að koma reglulega við hjá veðmangara til að veðja á fótboltaleiki. Hann segist hafa gert mikið af þessu þegar hann var unglingur, og hafi þá alltaf getað unnið sér inn fyrir nammi og bíóferðum. Hann tók sér svo hálfrar aldar frí frá veðmálum, en nú er þetta aðal áhugamálið - eins og stendur. Það er sóttur seðill, og svo taka við geysilega flóknir útrekningar og formúlugerð. Hann er nefnilega að vinna að hinu alfullkomna kerfi, sem á að virka þannig að hann tapi aldrei. Svo er farið og lagt undir, og síðan er fylgst með fótboltaúrslitum af athygli. Á mánudögum fer hann svo og sækir ágóðann. Hingað til hefur afraksturinn numið einum þremur pundum, enda er William maður gætinn í fjármálum og leggur ekki mikið undir í hvert sinn. En það má hann eiga að enn hefur hann engu tapað.

21.4.06

Mince and Tatties

Uppáhaldsréttur húsbóndans á heimilinu er “mince and tatties” – eða nautahakk og soðnar kartöflur. Ég elda þetta á einfaldan hátt, steiki hakkið og laukinn, set slatta af gulrótum útí, OXO tening, skvettu af Worchester sósu, og þykki svo aðeins með Bisto, ómissandi sósugerðarefni. Þetta þykir honum ljúffengur réttur, svo ég hef hann oft á borðum, því nýungar í matargerð eru ekki vinsælar. Móðir hans sáluga útbjó þennan rétt svolítið öðruvísi; mér er sagt að hún hafi ekki steikt hakkið, heldur soðið það vel og lengi daginn áður en það var á borðum, og látið standa yfir nótt. Líklega til að geta veitt mestu fituna ofanaf.
Vinkona mín ein, sem er skosk í húð og hár, eldar svo til allan mat vikunnar á laugardögum. Hún býr til stóran pott af grænmetissúpu, sem endist í marga daga. Svo steikir hún risaskammt af hakki, og geymir í ísskápnum. Það er notað í spaghetti á mánudögum, sem mince og tatties á miðvikudögum og í pastarétt með tómatsósu á fimmtudögum. Á þriðjudögum gefur hún familíunni tilbúna örbylgjurétti, á föstudögum er eiginmaðurinn sendur eftir fish and chips og á sunnudögum steikir hún kjúkling í ofni. Alltaf sami matseðillinn. Þeir vilja þetta, segir hún.

20.4.06

Gaman hjá Ellu

Hjá tækjaglaðri kerlingu jafnast ekkert á við nýja græju. Ég fékk tölvuna heimsenda í gær og hef haft nóg að gera við að setja allt upp og flytja gögn af þeirri gömlu. Netsamband er nú komið á, svo ég get haldið áfram að blogga.

17.4.06

Påskemorgen slukker sorgen

Hver var það sem alltaf hafði þetta yfir á páskadagsmorgun? Var það mamma, eða pabbi? Hvaðan sem ég hef þetta, þá kemur þessi setning alltaf upp í hugann á páskadag. Eftir smá rannsókn er ég búin að komast að því að þetta er upphaf á dönskum eða norskum páskasálmi.
Myndin er tekin í morgunbirtu á páskadag.

13.4.06

10.4.06

Ný tölva pöntuð í dag


Ég var að panta nýja tölvu frá Dell. Þetta verður fjórða tölvan sem ég kaupi um ævina. Fyrst var það gamli Victor, 1992, svart hvít með frumútgáfu af Windows. Næst var það Tulip, 1994, með Windows 95. Hún fylgdi mér hingað. Næst var svo Dell Dimension, keypt 1999. William erfði hana þegar ég fékk fartölvuna, árið 2001. Nýja tölvan er líka Dimension, lítil og sæt. Nú bíð ég spennt eftir sendingunni.