8.5.06

Eru skotar nískir?

Aðhaldssemi, sparsemi og nýtni. Passasemi. Fara vel með. Skotinn sem ég þekki best kemur hlaupandi þegar hann heyrir mig setja vatn í hraðsuðuketilinn. Grípur ketilinn og hellir helmingnum af vatninu í vaskinn. Ég hita víst stundum meira vatn en þarf í teið. Bruðl.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Sæl frænka, við erum hér saman feðginin að skemmta okkur yfir lýsingum þínum á skosku eðli :)
Við vonum heitt og innilega að þú náir nú að venja þig af þessu íslenska bruðli stelpa ;)

bestu kveðjur
Elín, María og Sammi