11.5.06

Eru skotar nískir? - 2

Við vorum boðin í brúðkaup í fyrra, sem haldið var í ráðstefnusal Háskólans í Sterling. Þegar gestir mættu var þeim vísað inná bar - þar sem drykkir voru seldir. Klukkutíma seinna var farið inní danssalinn, þar sem þrír skotapilsakarlar spiluðu af miklum krafti og gestir dönsuðu gömlu dansana. Seinna um kvöldið var gestum vísað í hliðarsal þar sem te, kaffi og hálfharðnaðar samlokur voru á hlaðborði. Hápunkturinn var svo brúðkaupsterta, sem við fengum öll smábita af (frítt). Þetta stakk óneitanlega í stúf við þau rausnarlegu glæsibrúðkaup sem tíðkast í minni fjölskyldu!

Engin ummæli: