Matar(ó)menning
Skotar eru ekki mikið fyrir hollustu, og eiga Evrópumet í hjarta, lungna, æða og hverskonar öðrum sjúkdómum sem stafa af óhollu matarræði og lélegum húsakynnum. Þeir éta franskar kartöflur með öllu, og djúpsteikja ótrúlegustu matartegundir. Stuttu eftir að ég kom hingað pantaði ég “seafood platter” á veitingahúsi við sjávarsíðuna, og hlakkaði til að fá ferskt fiskmeti. Mér brá í brún þegar diskurinn birtist, því ýsan, rækjurnar, humarinn og laxinn voru þakin raspi og djúpsteikt, og náttúrulega borin fram með frönskum. Brjóstsviðamatur!
Þekktastir eru Skotar þó fyrir að djúpsteikja pizzur og Mars súkkulaði. Mars bitanum er difið í deig áður en hann fer í djúpsteikingarpottinn. Ég get því miður ekki upplýst ykkur um hvernig þetta bragðast!
William er mikið fyrir franskar og fjárfesti í olíupotti, sem við höfum frammi í bílskúr. Þangað fer hann og steikir sínar kartöflur, sem hann hefur með flestum mat.

2 ummæli:
Jújú, hef svosum heyrt um djúpsteiktan fisk og mér hefur verið hótað djúpsteiktu marsi þegar ég átti að gera eitthvað sem ég vildi ekki gera. En PIZZUR!! Það jaðrar við guðlast.
William segist oft hafa skroppið í hádeginu og keypt sér hálfa djúpsteikta pizzu, og étið hana á leiðinni aftur í vinnuna!
Skrifa ummæli