1.5.06

Book Club

Leshópurinn kom saman í morgun. Mæting var góð og allir höfðu lesið bókina. Eftir líflega umræðu var borið fram te og kex, því hér er heimabakstur svo til óþekktur.
Leshópurinn varð til fyrir sex árum, í framhaldi af bókmenntanámskeiði sem haldið var í nálægu þorpi, Kilmacolm. Síðan höfum við hitst fyrsta mánudag hvers mánaðar, og eftir 69 skipti og jafnmargar bækur erum við farin að þekkjast bísna vel. Ellefu kerlingar og þrír karlar, öll komin vel af léttasta skeiði. Ég sé um vefsíðuna, sjá tengil hér efst til hægri.

Engin ummæli: