30.4.11

Ferðahugur

Á meðan  við nutum þess að eiga hana Tess okkar var mér meinilla við að fara neitt frá henni. Við skruppum nokkrum sinnum til Íslands, en reyndum að vera eins fáa daga í burtu og mögulegt var. Nú erum við orðin ein, og ekkert sem hindrar að fara í frí. Við ætlum að byrja smátt, bæði hálfgerðir byrjendur á þessu sviði, og erum búin að panta vikudvöl í frönsku Ölpunum í maí. Ég er farin að hlakka heilmikið til, og er eiginlega tilbúin, þó enn séu 10 dagar til brottfarar. Öllum vorverkum í garðinum er lokið, vorhreingerning innandyra er afgreidd, og ferðafötin eru keypt. Ég gæti farið á morgun! 

27.4.11

Vor í garðinum

 Rabarbarinn minn hefur sprottið svo vel í vor að ég er búin að sulta í þrjár krukkur, og á enn slatta eftir í graut.

 Allt orðið grænt og laufgað.

Clematis plantan mín er meira að segja farin að blómstra.

24.4.11

Gledilega paska!

Eg oska ykkur gledilegra paska, og bidst afsokunar a thvi ad nota ekki islenska stafi. Eg er nefnilega ad gera tilraun til ad senda mynd og texta beint af litlu lofatolvunni minni inn a bloggid.


18.4.11

Hún sáði



Hvað á ég eiginlega að gera við þetta allt saman?


Þetta eru Cosmos plöntur, en þær eru svo miklar renglur að ég held þær verði aldrei nothæfar.

Fyrir einhverjum vikum síðan keypti ég nokkra pakka af fræjum, og sáði í bakka. Nú sit ég uppi með ógrynni af agnarsmáum plöntum sem ég hef ekki hugmynd um hvað ég á að gera við. Í gær  eyddi ég þremur tímum í að planta þeim í litla potta, en enn sér varla högg á vatni í bakkanum. Ef þær dafna, þá hef ég ekki garðpláss fyrir þessi ósköp og það þarf að sinna þeim, vökva, bera bakkana út á daginn og inn á kvöldin.  Þar við bætist að þær verða varla nógu stórar til að blómstra fyrr en í haust. Mikið er nú skynsamlegra að fara bara í gróðrarstöð og kaupa nokkra bakka af tilbúnum, blómstrandi plöntum. 



Og ein mynd enn: Páskaliljurnar mínar,  vorið 2011. 

10.4.11

Sumarlegt

Það var 20 stiga hiti í gær, og sólin skein glatt mest allan daginn. Ég var geysidugleg í garðinum, hreinsaði illgresi af miklum móð, og sáði svo sumarblómum og stráði áburði í kringum fjölæru plönturnar. Þær eru óðum að stinga upp kollinum, flestar hverjar. Sumar hafa ekki látið á sér kræla enn,  kannske hefur þessi versti vetur í manna minnum gengið af þeim dauðum.  
Í ár ætla ég ekki að setja nein sumarblóm í potta, eins og ég hef gert undanfarin ár. Þeim fylgir svo mikil umhirða, og ég er að gera mér vonir um að ferðast í sumar. Kannske ég láti sjá mig heima. 

Kosningar heima

Ísland var í fréttunum hér í morgun, þjóðin er aftur búin að hafna Icesave samningunum.  Ég veit ekki hvað ég hefði gert, ef ég byggi enn heima. Ég myndi eflaust hafa sett mig vel inn í málið og kosið af sannfæringu, en ég hef ekki kosningarétt, og hef ekki fylgst nógu vel með fréttum til að hafa neina skoðun á málinu. Það er kannske best að fylgjast bara með úr fjarska og þurfa ekki að taka þátt í leiknum.

8.4.11

Garðvinna

Loksins, eftir margra daga rok og rigningu, stytti upp. Ég tók daginn snemma að venju, klukkan 8 var ég búin að þvo eina vél, hengja út á snúru og byrjuð að reita illgresi. Fyrst á dagskrá vað að hreinsa  beðin sem ég er vön að sá narsturssium fræjum í, og stinga upp gamalt beð og gróðursetja þar  tvær nokkuð stórar lúpínur sem voru í pottum í fyrra.  Um hádegið far tekið matarhlé, og mér til ergelsis var mér alveg ómögulegt að koma mér í gang aftur. Ég var uppgefin.  Agalegt að vera orðin gömul.  Eftir góða hvíld tókst mér að dragnast út og gróðursetja nokkrar plöntur sem ekki máttu bíða, og taka inn þvottinn. 

7.4.11

Út að borða

Okkur finnst góð tilbreyting í því að fara út að borða. Við förum alltaf í hádeginsmat, því húsbóndanum er illa við að aka eftir að fer að dimma. Við förum yfirleitt á sama stað, en ef við prófum nýjan stað, þá þarf að lesa matseðilinn fyrst, til að ganga úr skugga um að annarhvor þeirra tveggja rétta sem sá vanafasti vill neyta sé örugglega á matseðlinum. Djúpsteikt ýsa í raspi og franskar, eða djúpsteiktir humarhalar í raspi - og franskar. Hann segist ekki vilja taka neina áhættu, og sitja uppi með eitthvað sem honum finnst vont. Hann situr svo alsæll með brasið sitt, meðan ég gæði mér á einhverju sem ég hef aðldrei smakkað áður. 

3.4.11

Góðan daginn

Sólin skín, vorið er komið og í dag höldum við uppá 14 ára brúðkaupsafmælið okkar. Mér til undrunar - og mikillar ánægju - beið mín rómantískt kort og ávísun á eldhúsborðinu þegar ég kom niður í morgun.  Að venju ætlum við að halda uppá daginn með því að fara út að borða.

28.3.11

Vorið 2011

Undanfarna daga hefur verið bjart veður, sólskin, en kalt á nóttunni. Það hefur viðrar vel til garðvinnu, svo ég hef verið á fullu við að snyrta til, hreinsa dauðan gróður frá því í fyrra, og hlúa að því sem er farið að stinga upp kollinum. 
Laukarnir eru farnir að koma upp, og fosythiu runninn sunnan við hús er farinn að blómstra. Í gær tókum við garðstólana okkar út, og drukkum 3-kaffið í sólinni. Það er semsagt komið vor, og garðurinn virðist ætla að koma nokkuð vel undan vetri. Það sama er ekki hægt að segja um okkur, því höfum elst mikið.

25.3.11

Föstudagsþrifin

Ég var að ljúka vikulegri tiltekt, á mettíma.  Nú er þetta bara rútína, það eru engin moldug loppuför á gólfunum, engar drulluslettur á hurðum og gereftum, engin ský af hundahárum í hornum og undir stólum. Ég sakna kannske ekki þrifanna, en ég sakna hennar, sem kom inn blaut og moldug, dillaði rófunni og hristi sig duglega, og skipti um feld tvisvar á ári.

22.3.11

"Gera" listinn 2011

Endurnýja vegabréfið:   Búið
Panta og fara í ristilspeglun: Búið.
Panta og fara í augnskoðun og panta ný gleraugu: Búið.
Skattaframtalið: Búið.
Endurnýja ökuskírteinið: Ekki búið.  

14.3.11

Mikið er ég fegin

4. mars 2004 greindist ég með krabbamein í vinstra brjósti. Tvær aðgerðir fylgdu, geilsameðferð, reglulegar skoðanir á spítalanum, myndatökur, sýnatökur, ígerð í sárinu, spítalavist, og ólýsanlegar áhyggjur. Þetta hefur vofað yfir mér í sjö ár.
Í morgun mætti  ég í árlega skoðun, með hjartað í buxunum eins og venjulega, en í stað þess að gefa mér tíma í myndatöku og áframhaldandi eftirliti, gerðist það sem ég átti alls ekki von á. Ég var útskrifuð. Ég þarf ekki að koma þarna aftur. Aldrei. Þvílíkur léttir. Þetta hefur verið andstyggileg lífsreynsla, sem ég hefði frekar  kosið að ganga  í gegnum heima á Íslandi, í nálægð við mitt fólk, en nú er þessu lokið.  Guði sé lof.

12.3.11

Ca 1944


Guðrún Einarsdóttir frænka mín sendi mér þessa mynd í vikunni, sem hún rakst á í fórum foreldra sinna. (Faðir hennar er hálfbróðir mömmu). Þarna eru mamma og pabbi með mig ansi litla, líklega tveggja ára.  Ég man náttúrulega ekkert eftir því þegar myndin var tekin, og er ákaflega þakklát Guðrúnu fyrir að hafa sent mér hana. Bak við okkur bólar á dreng, skyldi þetta vera Halli bróðir? Mikið hefði nú verið gaman ef hann hefði verið með okkur á mymndinni.

Það snjóar

Ég sit og horfi á hundslappadrífuna og alhvíta jörð. Á stöku stað standa vesældarlegir gulir og bláir krókusar uppúr snjónum.  Í gærmorgun var kvefið á förum og ég hlakkaði til að fara út í garð um helgina til að hreinsa til og klippa, en það er allt á bólakafi! Þvílíkt og annað eins. Við ákváðum í morgun að vera ekkert að hreyfa bíl í þessari ófærð, svo nú er að nýta hugmyndaflugið og gera mat úr því sem til er. Ísskáps súpa í kvöld (allir grænmetis afgangar í ísskápnum saxaðir og soðnir í súpu, með lúku af bygg grjónum og grænmetis súputeningi. Ég fann svo tvær kjúklingabringur í fyrstinum, sem verða "sunnudags steikin" - líklega bý ég til afskaplega vinsælan (og auðveldan)  rétt með Campbell´s sveppasúpu úr dós, og sýð hrísgrjón með.  Það er lengi hægt að lifa á því sem finnst í skápunum.

9.3.11

Skór

Ég sá geysiflotta skó í verðlista og ákvað að panta. Eins og oft vill verða kom ég því ekki í verk, verðlistinn er enn á skrifborðinu mínu, opinn, og skórnir fallegu blasa við.
Þegar ég fór í leshóp á mánudaginn sá ég að Barbara vinkona mín sprangúleraði um í skónum góðu. Hún hafði sem sé líka fallið fyrir þeim, en hún hafði látið verð af því að panta þá, og átti ekki orð yfir hvað þeir væru þægilegir í alla staði. Ég, græn af öfund, get auðvitað ekki keypt mér skóna núna.

7.3.11

Andstyggðar kvefið

Kvefið versnaði aftur, og ég sem hef varla farið út fyrir dyr í fleiri daga. Bara setið undir teppi og farið vel með mig. En nú er leshópur í dag, sem ég vil alls ekki missa af. Ég er líka boðin á opnun á nýrri gróðrarstöð á morgun, og því vil ég heldur ekki missa af. Er málið ekki bara að harka af sér og snýta sér?

5.3.11

Birting

Eftir 10 tíma svefn vaknaði ég í góðu skapi. Aðallega er það vegna þess að allt gekk vel í gær, en líka vegna þess að kvefið er að batna, sólin er að hækka á lofti,  og þessi voðaegi vetur er á enda. Það er drunglegt úti, þoka og kalt og rakt, svo veðrið er ekki til garðvinnu, en ég á moldarpoka og ég á fræ, og ég get sáð í bakka eða litla potta. Það get ég gert inni, verst hvað ég á það til að svína allt út þegar ég umpotta eða sái. En það verður að hafa það. Fræin skulu í mold í dag. 

4.3.11

Föstudagur

Fyrir áratug eða svo fannst varhugaverð "tota" í ristlinum á mér. Mér var sagt að það þyrfti að framkvæma ristilspeglun reglulega til að ganga úr skugga um hvort fleiri slíkar totur yxu innra með mér, því þær ættu það til að vaxa og verða að ristilkrabbameini. Þessvegna fer ég í speglun á þriggja ára fresti.
Síðast fór ég árið 2008, og fannst þá 2011 óralangt undan. En í dag er ég að fara enn einu sinni í þessa ótrúlega andstyggilegu skoðun. Í gær mátti ég ekki borða neitt - og ekki í dag heldur. Ég á að drekka mikið, en bara "tæra" vökva. Tvisvar sinnum í gær þurfti ég svo að taka inn mixtúru sem er svo ógeðslega vond að ég kúgast bara af tilhugsuninni. Þessi mixtúra veldur því að öll innyflin tæmast.
Ég á ekki að mæta á spítalann fyrr en eftir hádegi. Yfirleitt tekur þetta nokkra klukkutíma, aðallega hangs og bið. Þegar ég rumska eftir svæfinguna (sem betur fer er ég svæfð) er mér gefið te og ristað brauð, og í minningunni er þetta gómsætasta máltíð sem hægt er að ímynda sér. Ekki skrýtið eftir tæpra tveggja sólahringa föstu.
Þessa stundina er ég illa haldin. Eftirstöðvar af flensunni eru enn að hrjá mig, og ég er eins og slytti. Engin orka. Ég sver að ég er ekki einusinni svöng lengur. Kannski er þetta besti megrnarkúrinn. Vigtin í morgun sýnir að ég er nákvæmlega, uppá gramm, 30 kílóum léttari en ég var í febrúar 2010.

28.2.11

Og þá var það flensan

Fuglaflensa, svínaflensa eða Lundúnaflensa. Allavega eitthvað meira en slæm kvefpest. Ég er búin að nötra og skjálfa og hósta og hnerra og í ofanalag var ég aum allsstaðar, með beinverki og magakveisu. Hamingjan veit hvað orðið hefði um mig ef ég hefði ekki farið í flensusprautu í haust. Ég væri líklega dauð og bloggandi  "að handan."  En þetta gengur yfir, eins og annað, og ég er á batavegi. Það er samt eitt og annað framundan í heilufarsmálum, árlegar tékkanir af ýmsu tagi, sem ég kvíði alltaf fyrir. Þegar að er allt yfirstaðið ætlum við að hoppa um borð í flugvél og fljúga í suðurátt. Draumurinn er gott hótel á hlýjum stað, góð þjónusta, góður matur, sundlaug, heitur pottur, og svo bara slappa af og láta okkur batna.  En gamla svartsýnin hvíslar því að mér að auðvitað komi eitthvað uppá.