2.8.09
1.8.09
Tómt batterí
Mér finnst gott að sofna útfrá einhverskonar rausi, helst sagna eða ljóðalestri, og á lítið tæki sem bæði er útvarp og MP3 spilari. Ég sæki mér podcasts á netið til að hlusta á ef ekkert er í útvarpinu sem hentar. Í gær rakst ég á audiobooks.net, netútvarp með upplestri, en það er bara hægt að hlusta á það gegnum tölvu. Ekkert mál, fartölvan tekin með í rúmið og stillt uppá náttborðinu. Það var ljóðalestur. Ekkert er betra. Lág, hljómfögur rödd, taktur, meiningarlaus orð. Ég sofnaði samstundis. Þegar ég vaknaði var tölvan dauð. Batteríið galtómt. Ég er að hlaða núna.
29.7.09
Gamla skrukkan
Það er allt farið að bila. Ég er eins og gamalt heimilistæki, komið að fótum fram. Endalausar viðgerðir. Flestir myndu endurnýja. Árið byrjaði með súkraþjálfun til að koma öxl og handlegg í lag. Svo tóku við árlegar tékkanir sýnatökur og áhyggjur af því - auk þess sem ég hef verið í meðferð hjá húðsjúkdómalækni vegna sólskemmda í andliti. Langvinnur þurr hósti reyndist vera aukaverkun af blóðþrýstingslyfi, og er að skána, en annað augað hefur mikið verið að pirra mig, og ég er búin að fá þrennskonar dropa og krem, enn án árangurs. Heyrnin er farin að bila líka (segir William). Varta á kviðnum á mér tók uppá því að bólgna, og í dag var hún fjarlægð og send í ræktun. Nú er ég með útsaumaðan maga og stóran plástur. Það er greinilegt að elli kerling er að ná yfirhöndinni.
26.7.09
Sunnudagsblogg
Árið 2000 létum við garðyrkjumann gera upp garðinn, og meðal plantnanna sem hann setti niður var grastoppur. Hann sagði þetta vera "interesting" plöntu, og þar sem grös allskonar hafa verið í tísku í görðum hef ég látið þennan topp eiga sig þar sem hann var. Svo var það í gær að ég var að stússa í beðunum að ég sá þetta fallega gula blóm. Eftir 9 ár er grastoppurinn sem sé farinn að blómstra! Það er sko "interesting"!
Fuglarnir eru orðnir svo þungir að þeir brutu lendingarprikið. Ég myndaði viðgerðina út um eldhúsgluggann.25.7.09
Tækjagleði
Vinkona mín, á áttræðisaldri, er afskaplega tækjaglöð. Ef hún sér eitthvað sem henni finnst sniðugt er það umsvifalaust keypt, en vandamálið er að hvorki hún né eiginmaður hennar hafa hugmynd um hvernig eigi að nota tólin. Þau eru nýlega búin að kaupa innanhúss net, fyrir síma, sjónvarp og tölvu, sem Sky setti upp, og eru með stóra tölvu sem einungis er notuð til að skoða vefsíður um skemmtiferðaskip, því þau fara gjarnan í slíkar reisur. Þau eru líka nýbúin að kaupa geysimikið sjónvarpstæki, einar 47 tommur, og Skype (ósett upp enn.)
Ég var boðin í morgunkaffi til hennar í gær, og visst strax að eitthvað bjó undir. Fyrst voru mér sýndar myndir úr nýlegri Indlandsferð. Geysimargar, og ekki góðar. Hún á fína digital vél, en kann ekki að færa myndir á tölvuna, og notar því gamla filmuvél. Myndirnar lét hún framkalla í Indlandi, og það var ekki vel gert, svo allir voru grænir á litinn.
Aðalástæðan fyrir kaffiboðinu reyndist hinsvegar vera sú að hún hafði keypt sér litla "netbook" fartölvu. Hún vildi nota hana fyrir email, en ekkert gerðist þegar hún klikkaði á "receive mail.". Tölvan hafði sjálfkrafa fundið og tengt sig við innanhússnetið, en "vissi" ekki hvert hún ætti að sækja póstinn. Ég hjálpaði henni við að setja Outlook Express upp til að sækja póst á Sky, sem var alls ekki einfalt, en tókst að lokum. Ég benti henni líka á að það þarf að hlaða batteríið á fartölvunni til að hægt sé að nota hana til frambúðar. Hún var afskaplega þakklát fyrir aðstoðina, og þegar ég kvaddi sagði hún að nú gæti hún tekið litlu tölvuna með sér í öll sín ferðalög og tékkað póstinn sin hvar sem hún væri. Ég passaði mig á að segja henni ekki að málið væri nú kannske ekki alveg svo einfalt.
18.7.09
Síminn minn
Ég er búin að eiga farsímann minn í fjögur ár, svo hann er orðinn gamaldags. Ég hef sjaldan notað myndavélina á honum, því ég hef alltaf talið mig eiga betri vélar. Svo fór ég að rannsaka stillingarnar, og sé að þetta er bara sæmilegasta myndavél. Hún var bara ekki stillt á "fine" svo myndirnar komu illa út. Þessa mynd tók ég áðan, í morgungöngunni okkar Tess. Þar sem litla Sony vasamyndavélin mín er biluð, og nýja vélin með aðdráttarlinsunni er stór, er auðvitað eðlilegast að nota símann, sem er alltaf tiltækur.
17.7.09
Græn paprika
16.7.09
Hásumar er nú
10.7.09
Lífsins lystisemdir
Þvílíkur dásemdarinnar dagur hefur þetta verið. Glaða sólskin og 18 stiga hiti. Ég var við garðyrkjustörf til hádegis, en sat svo í garðinum og las reyfara seinnipartinn. Tók aðeins hlé og bakaði vöfflur með þrjúkaffinu, og fór svo með Tess í smá skógargöngu. Svo var sóttur kínamatur í kvöldmatinn (mikið uppáhald húsbóndans) og með matnum glas af köldu hvítvíni. Jamm og jæja. Lífið er stutt. Best að njóta þess.
4.7.09
21.6.09
Sumardagar
Eru allir búnir að gleyma mér? Það er mátulegt á mig, ég hef ekki komið hér lengi. Það koma stundum tímabil í lífinu sem slá mig útaf laginu. En svo gengur þetta yfir, óttinn sem var að yfirbuga mig reyndist ástæðulaus, og það birtir aftur. Smátt og smátt.
Hér hefur sumarið verið með ólíkindum gott. Sól og blíða dag eftir dag. Rigningar bara mátulega til að vökva. Garðurinn er í blóma, og smáfuglarnir eru farnir að koma með ungahópa í matinn. Það er um að gera að kynna þeim mötuneytið. Við gefum þeim blandað fuglafóður, sólblómafræ, brauð, epli – og þurrkaða orma! Aðalvandamálið eru kettir nágrannans, sem eru farnir að halda til í garðinum, í felum undir runnum. Svo stökkva þeir á saklausa fugla, mýslur og íkorna. Við hlaupum út oft á dag til að reka þá í burtu.
Tess, sem hér áður fyrr sá um að halda kattavandamálinu í skefjum, er orðin ansi gigtveik og slæm til gangs, en matarlysin er í góðu lagi, og hún er alltaf jafn spennt að fara út í göngu. Úthaldið er ekki eins gott.
Á miðvikudaginn ætla ég að leggja land undir fót, og skreppa í heimsókn til Íslands. Það er orðið alltof langt síðan ég hef séð fólkið mitt heima.
13.5.09
Íkornastríð
9.5.09
Það rignir
Það hefur verið leiðindaveður hér í marga daga. Rok og rigning og miklu kaldara en fólk hér á að venjast á þessum tíma árs. Þessa stundina er eins og hellt úr fötu, en hérlendir myndu segja að það rigndi hundum og köttum.
Ég eyddi mörgum stundum í garðinum í mars og apríl, og upprætti allt illgresi, snyrti beð og sáði blómafræjum. Svo kom votviðrið og allur gróður hefur tekið hömlulausan kipp, vaxið úr sér og dottið um koll. Það á jafnt við um garðplöntur, gras og illgresi. Það verður mikið verk að koma lagi á málin þegar vindinn lægir og það styttir upp. Þangað til hef ég góða afsökun til að hafa það bara náðugt og lesa bók, eða leika mér á tölvunni. Það er ekki hundi út sigandi.
28.4.09
Tvær telpur
21.4.09
Klifrað í trjám
Handan við girðinguna okkar er gangstígur, og fyrstu árin hér var þó nokkur ófriður af honum. Unglingahópar fóru þarna um og skemmtu sér við að fleygja drasli inní húsagarða eða henda eggjum í glugga, svo við gróðursettum skjólgarð með hraðvöxnum trjám milli okkar og stígsins.
Sem betur fer eru unglingarnir líklega uppteknir við aðra skemmtan þessa dagana, svo það er orðið friðsælt hér, en trén hafa vaxið og voru orðin einir 5 metrar á hæð. Okkur fannst kominn tími til að taka af þeim toppana. Í gær var svo hafist handa. William klifraði upp í háan stiga og ég stóð og studdi og handlangaði verkfærin. Því miður eigum við engin tól sem henta, svo notast var við greinaklippur og gamla sög, ættaða frá Ísafirði. Pabbi notaði þessa sög til að saga sviðahausa, og hún er ansi bitlaus. Þar sem William þurfti að halda sér með annarri hendi hafði hann bara eina lausa til að saga, svo þetta var mikið verk og tók langan tíma. Á endanum tókst þó að saga af toppa á stærð við meðal jólatré af tveimur trjám. Tvö eru eftir, því við vorum orðin uppgefin, enda komin af léttasta skeiði bæði tvö. Í dag höfum við svo hvílt lúin bein.
Myndir er af trjánum áður en við réðumst á þau. Girðingin er tæplega 2m há. Rauða strikið sýnir hvað þau eru stór núna.
20.4.09
12.4.09
Úr daglega lífinu
Vinafólk okkar kom í heimsókn á laugardaginn. Þau eru á leið í ökuferð um Frakkland, og höfðu keypt sér SatNav tæki (TomTom), sem þurfti að stinga í samband við tölvu og updatera á netinu. Þessi heiðurshjón eru svo ótæknileg að það jaðrar við fötlun, en hafa samt mikinn áhuga á allskonar græjum og kaupa mikið af þeim, en geta svo sjaldan lært að nota neitt af þeim. Þau kunna ekki á DVD spilarann, þau kunna ekki að flytja myndir af myndavélinni á tölvuna og hafa aldrei komist uppá lag með að nota internetið. Það er sama hver hjálpar þeim og kemur hlutunum í gang, það er eins og það hvíli einhver álög á þeim, því ekkert virkar. Við William erum yfirleitt kölluð til hjálpar og höfum eytt löngum stundum við uppsetningar og aðstoð, en ekkert dugar.
Þetta TomTom tæki virtist nú samt vera lítið mál, ég tengdi það við tölvuna mína og byrjaði að hlaða inn. Allt í einu stoppaði allt. Netið datt út. Netútvarpið þagnaði. Við William prófuðum að starta öllum okkar tölvum, en án árangurs, enda reyndist routerinn sem stjórnar innanhússnetinu vera dauður. Við reyndum allt sem okkur datt í hug, og tókst að komast í samband í smástund, en svo datt allt út aftur. Þar sem frúin átti pantaðan tíma hjá einhverjum skottulækni, fóru þau og skildu tækið eftir. Þegar þau keyrðu í burtu fór allt sjálfkrafa í gang, eins og álögum hefði verið lyft af húsinu.
Ég kláraði að updatera TomTom, sem setti sig strax í samband við gervihnött og sagði mér hvar ég væri stödd, og William andaði léttara því það er ekkert sem truflar hann eins mikið eins og þegar eitthvað VIRKAR ekki. Það eina sem ekki vildi í gang aftur var netútvarpið, og var restinni af deginum eytt í að reyna að fá það í lag.
Um kvöldmatarleitið kom frúin og sótti TomTom. Þegar við vorum búin að fylgja henni til dyra heyrðum við músik. Netútvarpið var komið í gang!
Getur verið að það sé til fólk sem hefur svo öfluga anti-tech áru að öll tæki fari í kerfi? Við erum farin að hallast að því.
3.4.09
Leðurblaka
Ég fann agnarlitla leðurblöku á stéttinni við bakdyrnar í gær. Ég hafði heyrt af þessum skepnum hér, an aldrei séð, því þær fara á kreik þegar dimmir. Það var sól, og greyið hafði augljóslega villst, líklega nývöknuð úr vetrardvala og rugluð. Við fórum með hana upp í garðshorn, þar sem eru þéttir runnar, og hún festi sig strax á grein, hangandi á haus. Vonandi fór hún svo á kreik þegar dimmdi og fann ættingja sína. Ég tók ekki mynd af henni, vildi ekki hræða hana, svo ég fann þessa á netinu.



