12.4.09

Úr daglega lífinu

Vinafólk okkar kom í heimsókn á laugardaginn. Þau eru á leið í ökuferð um Frakkland, og höfðu keypt sér SatNav tæki (TomTom), sem þurfti að stinga í samband við tölvu og updatera á netinu. Þessi heiðurshjón eru svo ótæknileg að það jaðrar við fötlun, en hafa samt mikinn áhuga á allskonar græjum og kaupa mikið af þeim, en geta svo sjaldan lært að nota neitt af þeim. Þau kunna ekki á DVD spilarann, þau kunna ekki að flytja myndir af myndavélinni á tölvuna og hafa aldrei komist uppá lag með að nota internetið. Það er sama hver hjálpar þeim og kemur hlutunum í gang, það er eins og það hvíli einhver álög á þeim, því ekkert virkar. Við William erum yfirleitt kölluð til hjálpar og höfum eytt löngum stundum við uppsetningar og aðstoð, en ekkert dugar.
Þetta TomTom tæki virtist nú samt vera lítið mál, ég tengdi það við tölvuna mína og byrjaði að hlaða inn. Allt í einu stoppaði allt. Netið datt út. Netútvarpið þagnaði. Við William prófuðum að starta öllum okkar tölvum, en án árangurs, enda reyndist routerinn sem stjórnar innanhússnetinu vera dauður. Við reyndum allt sem okkur datt í hug, og tókst að komast í samband í smástund, en svo datt allt út aftur. Þar sem frúin átti pantaðan tíma hjá einhverjum skottulækni, fóru þau og skildu tækið eftir. Þegar þau keyrðu í burtu fór allt sjálfkrafa í gang, eins og álögum hefði verið lyft af húsinu.
Ég kláraði að updatera TomTom, sem setti sig strax í samband við gervihnött og sagði mér hvar ég væri stödd, og William andaði léttara því það er ekkert sem truflar hann eins mikið eins og þegar eitthvað VIRKAR ekki. Það eina sem ekki vildi í gang aftur var netútvarpið, og var restinni af deginum eytt í að reyna að fá það í lag.
Um kvöldmatarleitið kom frúin og sótti TomTom. Þegar við vorum búin að fylgja henni til dyra heyrðum við músik. Netútvarpið var komið í gang!
Getur verið að það sé til fólk sem hefur svo öfluga anti-tech áru að öll tæki fari í kerfi? Við erum farin að hallast að því.

Engin ummæli: