12.3.11

Ca 1944


Guðrún Einarsdóttir frænka mín sendi mér þessa mynd í vikunni, sem hún rakst á í fórum foreldra sinna. (Faðir hennar er hálfbróðir mömmu). Þarna eru mamma og pabbi með mig ansi litla, líklega tveggja ára.  Ég man náttúrulega ekkert eftir því þegar myndin var tekin, og er ákaflega þakklát Guðrúnu fyrir að hafa sent mér hana. Bak við okkur bólar á dreng, skyldi þetta vera Halli bróðir? Mikið hefði nú verið gaman ef hann hefði verið með okkur á mymndinni.

1 ummæli:

Anna sagði...

Dásamleg mynd alveg hreint. Og gamlafi svona asskoti myndarlegur.
Anna Thura