28.12.10

Innilokun

Í gær hlánaði loksins, hitinn fór yfir frostmark í fyrsta sinn í margar vikur. Það er því bærilegra hér innandyra. Úti er snjórinn að bráðna og eftir eru mikil svellalög, þannig að það er stórhætturlegt að fara neitt, sérstaklega fyrir halta kerlingu eins og mig. Ég sit því hér enn, í stólnum mínum, þar sem ég er búin að sitja í þrjár vikur. Það er nú ekki laust við að smá innilokunarkennd sé farin að gera vart við sig.  Þar sem ökklinn og úlnliðurinn eru á mjög góðum batavegi get ég nú vonandi bráðum farið að sinna vanræktum húsverkum, eiginlega hlakka ég bara til að taka allt í gegn. Þrífa ísskápinn, bakarofninn, rútta til í skápum og skúffum.  Mikið verður það gaman!

Engin ummæli: