13.12.10

Ólukkans ekkisen

Ég datt á svelli á miðvikudaginn. Eftir nokkurra daga innilokun vegna snjóa vorum við orðin bæði mjólkur- og brauðlaus, en yfirvöld höfðu beðið fólk að hreyfa ekki bíla að nauðsynjalausu, svo við dúðuðum okkur og gengum af stað í næstu búð. Á svellbunka á gangstíg við búðina datt ég illa. Ég stóð upp, en þá leið yfir mig svo ég datt aftur, og gat ekki staðið upp. Fólk dreif að og hringt var á sjúkrabíl. Fyrst var mér sagt að ég væri brotin bæði um ökkla og úlnlið, en mynd sýndi að ökklinn er óbrotinn. Hendin gæti verið brotin. 
Ég er aðeins farin að geta staulast um húsið, en þar sem hægri hendin er í spelku get ég bara notað fingurna. Ég hef því hægt um mig, sit í stólnum mínum og hef miklar áhyggjur af öllu sem er ógert.  
Það bætir ekki úr skák að þessi frostavetur sem hér ríkir á að halda áfram. Það á að kólna aftur eftir smá hlé, og jafnvel snjóa meira. Ég er ekki viss um að mig langi til að eiga heima hér lengur. 

1 ummæli:

Monty Dog sagði...

So sorry to hear about your fall. We hope you will be much better soon and that Christmas hasnt been too much of an ordeal.
Hopefully Tess kept you company in your chair!. Love & Best wishes Helen & Ian (Roddy Black Lab - mum and dad!)