Ella litla
Þessi mynd af mér var tekin 15. ágúst 1945. Góð vinkona pabba og mömmu, Valgerður Stefánsdóttir, sendi mér hana með jólakorti. Ég man eftir þessari mynd, hún var til heima, og pabbi hafði hana alltaf í ramma á hillunni hjá sér. Með árunum hafði hún fölnað, gulnað og bögglast, en hér er ég svo búin að fá splunkunýja útgáfu. Mikið gladdi þessi sending mig. Þarna sit ég á "stakketinu" fyrir framan hús í Skriðu, þriggja og hálfs árs gömul, með kisuna okkar.


Engin ummæli:
Skrifa ummæli