12.12.10

Jólatréð mitt

Í jólakassanum mínum er lítil tréaskja og í henni geymi ég jólaskraut sem fylgt hefur mér alla ævi. Skraut sem var á jólatrénu í Skriðu í gamla daga, sumt jafnvel eldra en ég. Sumt af þessu gamla skrauti er heimatilbúið, litlar kerlingar og blóm úr krep pappír sem mamma bjó til, og þarna eru æva gamlar kúlur, fuglar með klemmu, pappírsfiðrildi og músastigar. Allt var þetta undur fallegt í mínum augum þegar jólatréð var skreytt á Þorláksmessukvöld, undir upplestri jólakveðjanna í útvarpinu. 
Ég hef ekki notað þetta gamla skraut síðan þá, ég keypti mér gervitré og nýtt skraut þegar ég eignaðist mín a fyrstu íbúð, og hef smá bætt það safn gegnum árin, en í ár datt mér í hug að taka fram öskjuna - og nota bara gamla dótið. Þarna er jólasveinninn minn, og jarðarberið, sem var alltaf uppáhaldið mitt. Bláa kúlan, rauða kúlan og kúlan sem ég fékk að velja sjálf í búð á Ísafirði fyrir jólin. Líklega 4-5 ára.  Minningar, miningar.

Engin ummæli: