22.12.06

Kærkomnar kveðjur


Jólakortin eru nú óðum að berast og ég bíð spennt eftir póstinum á hverjum degi. Þær eru kækomnar kveðjurnar að heiman. Hér tíðkast að nota kortin sem jólaskraut, og ég hef tekið upp þann sið.
Neðst til vinstri á myndinni sést í snoppuna á Tess, sem er að rannsaka kort sem kom áðan frá nágrannafólki sem á tvo ketti.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Gleðileg jól kæra frænka.
Vona að Tess samþykki nú jólakortið okkar, þrátt fyrir að það komi frá heimili með tveimur kisu körlum þeim Pusa og Ynda:)

Jólakveðjur af Sogaveginum,
María Jóna, Pusi og Yndi