20.6.11
4.6.11
Afhverju erum við ekki með hjól?
Eftir nokkuð strembinn dag í garðinum hófst umræða um hönnun okkar mannfólksins, og hvað betur hefði mátt fara. Ef William hefði hannað okkur værum við með hjól, og tvö hjörtu, því það væri skynsamlegt að hafa eitt til vara. Ef ég hefði átt þátt í hönnuninni hefði ég bætt við "reboot" takka, og eins hefði ég haft takka til að auka brennslu eftir góða máltíð.
1.6.11
Af veðurfari
Hér hefur rignt svo til látlaust síðan við komum heim, og það er ekki bara rigning, heldur líka rok og kuldi. Ég hef sætt lagi við að komast í garðinn, svona á milli skúra. Þetta á við um Skotland, en í Englandi hefur verið þurrasta og heitasta vor í manna minnum. Svona er þessu nú misskipt. Nú er spáð skárra veðri hér á morgun og fram yfir helgi, svo kannske ég geti vígt stuttbuxurnar sem ég hafði ekki kjark til að láta sjá mig í í Frakklandi.
Næstu helgi verðum við með hund í fóstri, Rory. Hann var mikill vinur Tess, og því okkar líka. Eigendur hans, Eleanor og Craig, ætla að heimsækja son sinn í Newcastle.
23.5.11
Uglan mín
Rok og rigning.
Heimferðin gekk að óskum, og við erum búin að hvíla okkur vel. Veðrið hefur verið afleitt síðan við komum heim, og mér er sagt að það hafi verið rigning allan tímann sem við vorum í burtu.
Hér eru myndir úr ferðinni:
https://picasaweb.google.com/elinjons1942/FRANCEMAY2011?authkey=Gv1sRgCPKj-t3oyOHSHQ&feat=directlink
16.5.11
14.5.11
Franskur matur
Fransmenn teljast godir kokkar, en vid erum ekkert serlega hrifin af matnum her. Hann er svosem i lagi, en ekki meira. Thad er mikid um allskonar "tartar" - sem er hrar matur. William er tvisvar buinn ad lenda i ad panta ovart hrameti, lax og hamborgara. Og hann sem er vanur ad lata mig steikja allan mat i hel. Svo er mikid um allskonar "mousse." Graenmetis urvalid a markadnum er geysilega girnilegt, en hvad fekk eg med kalfasteikinni i kvold? Graenmetis "mousse" svo eg hef ekki hugmynd um hvad eg var ad borda. Sja mynd.
Gaman
Heilsdagsferd i fyrradag, halfsdagsferd i gaer, fri i dag, heilsdagsferd a morgun, halfsdagsferd a manud. og heim a thridjud. Nog ad gera. Hef ekki sett inn myndir aftvi eg skil tolvuna eftir i safe thegar eg er utanhuss og sony myndavelin er ekki tengjanleg vid tolvuna. Mundi alltieinu eftir ad siminn minn er med bluetooth, svo nu aetla eg ad taka hann med i dag og taka mynd og millifaera i kvold. Mikid er nu gaman ad leika ser med dotid sitt!
10.5.11
Ferdasaga frh.
Vid erum komin a afangastad, og allt hefur gengid upp. Hotelid er notalegt - og thad er netsamband a herbergjunum. Umhverfid er geysi fallegt, og vid hlokkum til ad fara i skodunarferdir naestu daga. Thad var 24 stiga hiti i dag. William getur valid a milli 47 shonvarpsrasa - a fronsku.
Ferdasaga
Eiginmadur minn gengur med axlabond - med malmklemmum. I oryggishlidum a flugvollum fer allt i gang. Severe warning. Hann tekinn til hlidar og thukladur hatt og lagt, og svo settur i gegnumlysingu. Thetta ergir hann afskaplega mikid, svo hann er i vondu skapi i langan tima a eftir. Eg aetla ad leita ad axlabondum med plast klemmum og gefa honum adur en vid forum i naesta ferdalag.
9.5.11
Tilbúin til brottfarar
Búið að pakka niður, og búið að ganga frá öllu, innan dyra og utan. Bara eftir að skipta um föt og setja á sig andlit. Mikið verður hressandi að skipta um umhverfi, kanna nýjar slóðir og sjá tilveruna úr smá fjarlægð.
5.5.11
Garðálfur
30.4.11
Ferðahugur
Á meðan við nutum þess að eiga hana Tess okkar var mér meinilla við að fara neitt frá henni. Við skruppum nokkrum sinnum til Íslands, en reyndum að vera eins fáa daga í burtu og mögulegt var. Nú erum við orðin ein, og ekkert sem hindrar að fara í frí. Við ætlum að byrja smátt, bæði hálfgerðir byrjendur á þessu sviði, og erum búin að panta vikudvöl í frönsku Ölpunum í maí. Ég er farin að hlakka heilmikið til, og er eiginlega tilbúin, þó enn séu 10 dagar til brottfarar. Öllum vorverkum í garðinum er lokið, vorhreingerning innandyra er afgreidd, og ferðafötin eru keypt. Ég gæti farið á morgun!
27.4.11
Vor í garðinum
24.4.11
Gledilega paska!
Eg oska ykkur gledilegra paska, og bidst afsokunar a thvi ad nota ekki islenska stafi. Eg er nefnilega ad gera tilraun til ad senda mynd og texta beint af litlu lofatolvunni minni inn a bloggid.

18.4.11
Hún sáði
10.4.11
Sumarlegt
Það var 20 stiga hiti í gær, og sólin skein glatt mest allan daginn. Ég var geysidugleg í garðinum, hreinsaði illgresi af miklum móð, og sáði svo sumarblómum og stráði áburði í kringum fjölæru plönturnar. Þær eru óðum að stinga upp kollinum, flestar hverjar. Sumar hafa ekki látið á sér kræla enn, kannske hefur þessi versti vetur í manna minnum gengið af þeim dauðum.
Í ár ætla ég ekki að setja nein sumarblóm í potta, eins og ég hef gert undanfarin ár. Þeim fylgir svo mikil umhirða, og ég er að gera mér vonir um að ferðast í sumar. Kannske ég láti sjá mig heima.
Kosningar heima
Ísland var í fréttunum hér í morgun, þjóðin er aftur búin að hafna Icesave samningunum. Ég veit ekki hvað ég hefði gert, ef ég byggi enn heima. Ég myndi eflaust hafa sett mig vel inn í málið og kosið af sannfæringu, en ég hef ekki kosningarétt, og hef ekki fylgst nógu vel með fréttum til að hafa neina skoðun á málinu. Það er kannske best að fylgjast bara með úr fjarska og þurfa ekki að taka þátt í leiknum.
8.4.11
Garðvinna
Loksins, eftir margra daga rok og rigningu, stytti upp. Ég tók daginn snemma að venju, klukkan 8 var ég búin að þvo eina vél, hengja út á snúru og byrjuð að reita illgresi. Fyrst á dagskrá vað að hreinsa beðin sem ég er vön að sá narsturssium fræjum í, og stinga upp gamalt beð og gróðursetja þar tvær nokkuð stórar lúpínur sem voru í pottum í fyrra. Um hádegið far tekið matarhlé, og mér til ergelsis var mér alveg ómögulegt að koma mér í gang aftur. Ég var uppgefin. Agalegt að vera orðin gömul. Eftir góða hvíld tókst mér að dragnast út og gróðursetja nokkrar plöntur sem ekki máttu bíða, og taka inn þvottinn.
7.4.11
Út að borða
Okkur finnst góð tilbreyting í því að fara út að borða. Við förum alltaf í hádeginsmat, því húsbóndanum er illa við að aka eftir að fer að dimma. Við förum yfirleitt á sama stað, en ef við prófum nýjan stað, þá þarf að lesa matseðilinn fyrst, til að ganga úr skugga um að annarhvor þeirra tveggja rétta sem sá vanafasti vill neyta sé örugglega á matseðlinum. Djúpsteikt ýsa í raspi og franskar, eða djúpsteiktir humarhalar í raspi - og franskar. Hann segist ekki vilja taka neina áhættu, og sitja uppi með eitthvað sem honum finnst vont. Hann situr svo alsæll með brasið sitt, meðan ég gæði mér á einhverju sem ég hef aðldrei smakkað áður.


