Garðálfur
Ég stóðst ekki freistinguna þegar ég sá hann í gær í kjörbúðinni þar sem við kaupum venjulega í matinn. Hann sat þar á neðstu hillu innanum ýmsar garðvörur, svo sem pöddueitur og rósaáburð. Ég veit að svona garðskraut tels gamaldags, en mér finnst hann afskaplega vinalegur. Hann heldur á lítilli lugt, og það er sólarnemi á afturendanum á honum sem hleður batterí, og það kviknar á lugtinni þegar dimmir.


Engin ummæli:
Skrifa ummæli