23.5.11

Uglan mín

Við höfum nokkrum sinnum þurft að fara með veika eða slasaða fugla - og einusinni agnarlítinn íkornaunga - í Hessilhead Wildlife Rescue. Þar er þeim hjúkrað og komið á legg, og síðan sleppt. Ég ákvað að gerast styrktarfélagi, og borga uppihald fyrir einn "sjúklíng" á ári. Þetta er þvi uglan mín, Loudon. Hann hafði dottið úr hreiðri þegar hann var hálfsmánaðar gamall, gott fólk bjargaði honum og nú býr hann í  Hessilhead ásamt fimm öðrum uglu ungum, og stækkar ört. Þeim verður sleppt í skóginn kringum Hessilhead þegar þeir eru taldir geta séð um sig sjálfir, og eiga vonandi eftir að eiga langt og farsælt uglulíf.

Engin ummæli: