Garðurinn í júní 2011
Sólarglæta í dag, eftir marga rigningardaga, svo ég púlaði í garðinum í fimm tíma.
Það vantar ekki gróðurinn.
"Steinhæðin" mín hefur er horfin í burknaskóg. Þeir vaxa villtir og sá sér allsstaðar.
Allt er grænt, en minna um blóm. Það hefur verið svo blautt og sólarlaust.
Þegar e-coli skrekkurinn reið yfir ákvað ég að hætta að kaupa gúrkur og salat og þh. og keypti pakka af fræi í staðinn. Það verður greinilega einhver smá bið á því að ég geti farið að gæða mér á heimaræktuðu grænmeti..
Góður gestur í garðinum. Hér á bæ er engum mat fleygt. Grænmetisafgangar fara í þar til gerða tunnu, sem vonandi verður einhverntíman að gróðurmold. Annað fer í rebba. (Tess sá alltaf um þetta, en nú nýtur hennar ekki lengur við.)
Rebbarnir sem koma í mat til okkar eru yrðlingar síðan í vor, og það er gaman að horfa á þá veltast um og hnoðast eins og kettlingar, og elta hvorn annan á harðaspretti. Tófumömmu hef ég ekki séð, en hún fylgist örugglega með þeim.
Þeir eru báðir með "ljós" á rófunni.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli