22.2.09
7.2.09
Webcam
3.2.09
Vetrarhörkur
Svona var útsýnið út um gluggann hjá mér í ljósaskiptunum í gær. Snjóföl, sem nú er horfið því það er aftur farið að rigna. Það snjóaði meira allt í kringum okkur, og í Englandi var hálfgert neyðarástand, því þeir hafa litla reynslu af snjó. T.d lokaðist einn flugvöllur, ekki vegna þess að þeir hefði ekki snjóruðningstæki, heldur afþví þeir vissu ekki hvar þeir ættu að setja snjóinn.
1.2.09
Svartþröstur
26.1.09
Þvottadagur
25.1.09
Vetrargöngur
Daglegar morgungöngur okkar Tess styttast sífellt. Venjulega leggjum við í hann um hálf níu leitið, þá er orðið bjart. Ef hitinn er fyrir neðan frostmark er Tess í úlpunni sinni, og eins ef er stórrigning. Ég er dúðuð í flísjakka, úlpu, trefil, húfu og vettlinga og eini fótabúnaðurinn sem dugir hér eru græn vaðstígvél. Það mætti halda að verið væri að leggja i langferð á fjöll, en venjulega förum við bara upp skógarstíginn og í smá hring, þangað til Tess er búin að ljúka sér af. Heim komum við svo um kl. 9. Þó gangan sé ekki löng þarf að smúla loppur og stígvél með garðslöngunni, því hér eru allir stígar ein forarleðja.
Meðan við vorum "ungar" hittum við alltaf "hundagönguhópinn" á morgnana. Það voru lengri göngur, og skemmtilegur félagsskapur. Ég sakna þess svolítið að hitta ekki hinar kellurnar á morgnana.
16.1.09
Bóksala
Það byrjaði með því að eiginmaðurinn hélt því fram að húsið hefði ekki burðarþol til að bera bókasafnið mitt, sem ég hýsti í "kamesinu" mínu uppi. Ég fyrtist náttúrulega, keypti hillu í stofuna fyrir þyngstu bækurnar, og setti kiljurnar í sölu á Amazon. Ég er með "seller account" - skrái bækurnar, og Amazon lætur mig vita þegar bók selst, sér um að innheimta, en ég skuldbind mig til a senda bókina innan tveggja daga. Þetta hefur reynst mér vel, og þó mér hafi runnið reiðin fyrir átta árum, er ég enn að selja bækur. Ég fæ vasapening, losa pláss, og hef ekki lengur samviskbuit yfir því mikla magni af bókum sem ég kaupi mér.
10.1.09
Þegar ég var 17 ára var ég í nokkra mánuði á enskuskóla í Brighton. Ég bjó hjá Mrs. Hope, sem átti tvær dætur, Liz, 16 ára og Jennifer, 19 ára. Við Liz deildum herbergi og okkur kom vel saman. Því miður missti ég öll tengsl við þessa fjölskyldu. Dæturnar giftu sig og fengu ný eftirnöfn og gamla konan flutti. Það kom mér því skemmtilega á óvart þegar ég fékk orðsendingu frá Liz á facebook í morgun. Einhvernveginn hafði hún fundið mig. Við höfum setið við tölvurnar í dag og skipst á orðsendingum. Það eru meira en 40 ár síðan við hittumst síðast. Margt að spjalla um. Við erum, merkilegt nokk, enn á sömu nótum. Áhugamálin eru dýr, fuglar, garðyrkja og tölvur.
7.1.09
Jólin eru búin
Allt jólaskrautið er nú komið í kassann sinn. Jóladúkarnir og löberarnir þvegnir og straujaðir eru komnir í kommóðuskúffuna sína. Ég hef það fyrir vana að ganga frá þessu öllu eins og ég vil koma að því á næstu jólum, þrátt fyrir það að í hvert sinn sem ég pakka það niður sé ég handviss um að ég sé að gera það í síðasta sinn. Á næstu jólum verði ég örugglega dauð.
Gamla jólaskrautið vekur allskonar minningar, flestar ljúfsárar. Sumt á rætur sínar að rekja til Skriðuáranna, þar sem jólin voru ekki alltaf sælutími. Annað skraut, yngra, minnir á aðra tíma, annarskonar jól. Nýjasta dótið, það sem bæst hefur við síðan ég kom hingað, setur að mér ótta um að þessum hamingjuárum fari kannske að ljúka. Nei, mér er ekki viðbjargandi.
Strandaglópur
Allar flugsamgöngur milli Íslands og Glasgow hafa nú verið lagðar niður. Síðasta vélin fór um Glasgow flugvöll um sl. helgi, og engar horfur virðast á að flug hingað verði tekið upp að nýju. Mér finnst þetta sár missir. Þegar við settumst hér að var nálægðin við flugvöllinn mér mikils virði. Það var notalegt að sjá íslenskt stél við flugstöðina þegar við keyrðum framhjá flugvellinum, og að vita að Ísland var bara í tveggja tíma fjarlægð. Nú orðið fer ég ekki oft heim, ég hef ekki komið heim í rúm þrjú ár. Það eru persónulegar ástæður fyrir því. Ég get ekki hugsað mér að fara frá Tess, og svo er ég orðin geysilega ferðakvíðin og flughrædd. Ferðalag um London myndi trúlega vera mér ofviða. Tvö flugtök, tvær lendingar. Það vex mér í augum. Ég er ekki ung lengur.
3.1.09
Vökunótt
Ég vaknaði kl. 4 við hundsvæl, Tess vildi út. Staulaðist niður og opnaði bakdyrnar, og beið svo þangað til hún loksins kom inn. Aftur í rúmið. Hálftíma seinna þurfti hún aftur fara út. Nú var ég svo vel vöknuð að það gekk illa að sofna. Þegar fröken Tess fór enn að væla við dyrnar um hálf sjöleitið gafst ég upp, fór á fætur og fór út með hana í göngutúr. Þegar ég var komin út fyrir garð í myrkrinu áttaði ég mig á því hvað það var draugalegt í skóginum. Svarta myrkur. Ég sá ekki gangstíginn og hafði ekki asnast til að hafa vasaljósið með mér. En við gengum samt smástund, eftir minni, þangað til Tess var búin að ljúka sér af. Það var skrýtið að vera á ferli á þessum tíma dags, hvergi ljós, allir sofandi nema við Tess. Nú sefur hún sætt í sófanum. Vonandi er magakveisan að baki.
1.1.09
Gleðilegt nýtt ár!
24.12.08
Jólin koma
Ætlunin var að taka reglulega góða fjölskyldumynd til að setja á jólakveðjuna. Myndavélin var sett á þrífót og leiðarvísirinn lesinn, og allt sett upp samkvæmt bókinni. Svo var ýtt á takkann og sest í sófann, en árangurinn varð annar en ætlað var. Tess vildi ekki sitja fallega á milli okkar, allir eru hreyfðir, og myndavélin virðist hafa tekið tvær myndir, hverja ofaní aðra. En þrátt fyrir þetta klúður, þá sendum við ykkur öllum bestu jólaóskir og vonum að allir eigi góð og róleg jól.
15.12.08
Jólakötturinn
Jólagjöf fyrir hund þarf annaðhvort að vera eitthvað til að éta - eða eitthvað til að tæta í sundur. Því er til siðs á þessu heimili að prjóna jólakött (stundum rottu) til að gefa Tess í jólagjöf. Þessu verki var lokið á skömmum tíma yfir helgina, því ekki þarf að vanda til. Svo verður kötturinn pakkaður inn í jólapappír, því Tess veit ekkert skemmtilegra en að rífa utanaf pökkum, og éta - eða tæta innihaldið í sundur. .Neðri myndin er af kettinum í fyrra, tekin á aðfangadagskvöld klukkan 10.
6.12.08
Skammdegi
Það hefur ekki snjóað hér, en það er kalt, sleipt og dagarnir eru stuttir. Helst vildi maður bara leggjast í hýði, og rumska í mars, þegar vetrargosarnir og krókusarnir springa út. En nú eru það blessuð jólin sem nálgast, svo það þarf að sinna ýmsu af því tilefni. Jólastressið sem ég upplifði alltaf heima þekkist sem betur fer ekki hér, enginn bakstur eða hreingerningar. Það hvílir því friður og ró yfir okkur hér, og þakklæti, því Tess er enn hjá okkur.
29.11.08
Í eldhúsinu
Ég var að saxa lauk í súpu, og það er merkilegt hvað hugurinn tekur á flug. Hvert sinn sem ég saxa lauk á kemur sama setningin upp í hugann:
"Kun til Deres løg."
Þessi tilvitnun er ættuð frá þeim tíma þegar dönsk blöð voru mikið lesin. Hendes Verden, Femina, Alt For Damerne. Leiðbeiningar um skynsamleg vinnubrögð í eldhúsinu: notið sama brettið til að saxa laukinn á - og notið það ekki fyrir neitt annað.
Það er svo langt síðan að ég las þetta að við "dömurnar" vourm þéraðar og af einhverjum undarlegum ástæðum er þessi setning blýföst í hausnum á mér, og dúkkar alltaf upp þegar laukur er sneiddur eða saxaður. Ég hef meira að segja farið eftir þessu, ég á eldgamalt skerbretti sem bara er notað fyrir lauk. Kun til min løg!
26.11.08
Hegraskömmin
22.11.08
Friðarstund
Við Tess förum snemma á fætur, fáum okkur kaffisopa (ég) og hundamat (hún) og förum út í göngutúr. Það þarf að þefa af öllum þúfum, runnumog trjástofnum, til að fylgjast með hunda, katta, refa og mannaferðum síðan síðast. Og gera sín stykki (hún).
Þegar heim kemur er allt gert samkvæmt föstum reglum. Við erum vanafastar, við Tess. Hún fær cocktailpylsu, og ég hita það sem eftir er af morgunsopanum mínum í örbylgjunni, og svo fær hún sér blund í sófanum, en ég sest í hægindastólinn minn með lapptoppinn á hnjánum. Það ríkir friður og ró, og ekkert samviskubit yfir því að vera ekki að gera húsverkin, því það má ekki hafa hátt. Húsbóndinn sefur enn. Ryksugan myndi vekja hann. Þvottavélin myndi taka vatnið sem hann þarf að nota þegar hann vaknar og fer í sturtu. Annir dagsins hefjast ekki fyrr en undir hádegi á þessum bæ!





