22.11.08

Friðarstund

Við Tess förum snemma á fætur, fáum okkur kaffisopa (ég) og hundamat (hún) og förum út í göngutúr. Það þarf að þefa af öllum þúfum, runnumog trjástofnum, til að fylgjast með hunda, katta, refa og mannaferðum síðan síðast. Og gera sín stykki (hún).
Þegar heim kemur er allt gert samkvæmt föstum reglum. Við erum vanafastar, við Tess. Hún fær cocktailpylsu, og ég hita það sem eftir er af morgunsopanum mínum í örbylgjunni, og svo fær hún sér blund í sófanum, en ég sest í hægindastólinn minn með lapptoppinn á hnjánum. Það ríkir friður og ró, og ekkert samviskubit yfir því að vera ekki að gera húsverkin, því það má ekki hafa hátt. Húsbóndinn sefur enn. Ryksugan myndi vekja hann. Þvottavélin myndi taka vatnið sem hann þarf að nota þegar hann vaknar og fer í sturtu. Annir dagsins hefjast ekki fyrr en undir hádegi á þessum bæ!

12.11.08

Sá ég spóa . . .

Suður í Flóa? Nei, ekki var hann nú þar, heldur í fjörunni niður við Clyde.
Og tjaldar voru þar á vappi líka. Skyldu þetta vera farfuglar að heiman?

8.11.08

Ófreskja í baðkarinu mínu

Ég hef aldrei verið hrifin af kóngulóm, en þar sem við búum í nágrenni við skóglendi er mikið um "gesti" sem trúlega telja það þeir eigi heima hér, en ekki við. Þetta á við um mýslur - en sérstaklega allskonar skordýr. Sú kónguló sem mér býður allra mest við kallast "giant housespider." Hún er geysistór og spretthörð, svo það er ekki auðvelt að veiða hana.

Þetta ferlíki , líklega 10cm langt, var í baðkarinu í gær, komst ekki upp en faldi sig í niðurfallinu. Hún kom svo upp þegar ég slökkti ljósið, og eftir að tappinn hafði verið settur í tókst að veiða hana með "vél" sem ég keypti í Lakeland og sleppa henni út um gluggann. Vonandi kemur hún ekki aftur.

6.11.08

Sinn er siður ...

Hér um slóðir má stundum sjá heimtilbúnar tilkynningar meðfram fjölförnum vegum, oftast við hringtorg. Þetta eru yfirleitt hvít lök sem fest hafa verið upp og á þeim stendur oftast eitthvað í þessum dúr: Happy 40 Fiona, eða Gordon is FORTY today. Hér eru fertugsafmæli nefnilega talin svo merkileg að fólki finnst nauðsynlegt að auglýsa þau á víðavangi. Hús þessara lukkulegu einstaklinga eru svo skreytt með blöðrum og Happy Birthday lengjum allskonar. Hér tíðkast líka að stilla öllum afmæliskortunum sínum upp í gluggakistuna, og þá auðvitað þann glugga sem snýr að götunni. Hér eru kort vinsæl, og í verslunum fást kort til nota við öll möguleg tilefni. Um jólaleitið skiptast allir á kortum, fólk réttir hvert öðru kortin, og ég fæ kort frá öllum hundagönguhópnum og öllum í götunni. Kortin eru svo notuð sem jólaskraut, þeim stillt upp á arinhilluna, hengd upp á strengi eftir endilangri stofunni - eða stillt út í glugga.

4.11.08

Haustganga

Loch Winnoch.
Álft á vatninu.Mávager.
Tess á leið að bílastæðinu, með stóra spítu í kjaftinum sem hún ætlaði að taka með heim.
Tess og spítan góða.

Seinnipartinn í gær fórum við í göngu meðfram Loch Winnoch, sem er einn af uppáhalds útivistarstöðunum okkar. Þar er mikið af öndum og svönum, og þeir eru spakir svo það er auðvelt að ná góðum myndum af þeim. Veðrið var óvenju gott, þurrt og bjart.



Leshópur

Leshópurinn hittist hér í gær, svo það var mitt hlutverk að velja og kynna bókina og sjá um kaffiveitingar. Sem betur fer tíðkast ekki heimabakstur hérlendis, og allir sáttir við kex með kaffinu. Síðustu daga höfum við hinsvegar átt mjög annríkt við að þrífa. Ég hef látið slíkt sitja á hakanum í ansi langan tíma, því ég var svotil einhent meðan ég var með frosna öxl og auman handlegg, og gat ekki einusinni sópað, en nú er mér batnað og ég hef enga afsökun. Við gátum náttúrulega ekki látið gestina sjá hvað allt var rykugt og útkámað, svo við tókum vel í gegn.
Hópurinn mætti svo í gærmorgun, 12 manns, og það var mikið spjallað. Bókin, The Road Home eftir Rose Tremain, er 98 bókin sem við höfum lesið síðan hópurinn var stofnaður, árið 2000.

31.10.08

Halloween

Hér heldur fólk uppá Halloween - en slíkur dagur þekktist ekki í mínu ungdæmi. Á Ísafirði var farið "á maska" á bolludagskvöld.
Starfsfólk í matvöruversluninni okkar hér var klætt allskonar búningum í morgun, galdranornir sátu við kassana og indíánar og beinagrindur voru að fylla upp í hillur. Seinnipartinn fara krakkar um og sníkja nammi, og á hverju ári kaupum við helling af gotteríi - í þeirri von að einhverjir banki uppá. En það kemur aldrei neinn, svo við étum allt sælgætið sjálf.

21.10.08

Spæta kom að fá sér í gogginn

Af öllum þeim fuglum sem koma í mat til okkar er spætan glæsilegust. Hún er svart og hvít flekkótt með rauðan blett á hnakkanum og undir stélinu. Ég tók þessa mynd útum eldhúsgluggann með aðdrætti, svo hún gæti verið betri.


Þessi er ekki tekin af mér, en sýnir vel hve flottur fuglinn er.

20.10.08

Uppstytta



Haust í garðinum - og ein fuglamynd.

Haustveður

Það er hvasst og blautt í dag, og garðurinn er þakinn laufi. Ég slepp við allan rakstur í ár, því ég verð að hlífa öxlinni á mér. Ég hef aldrei verið sérlega hrifin af haustlitum, því fölnuð lauf minna mig alltaf á fallvaltleika lífsins og þesskonar dapurlega hluti, en verð nú að viðurkenna að sum trén hér í kring hafa verið afskaplega litskrúðug undanfarið. Því miður hefur alls ekki viðrað til myndatöku, en ef styttir upp í dag get ég kannske náð einhverjum haustmyndum í garðinum. Sjáum til.

12.10.08

Sulta

Ég var að elda beikon og egg. Húsbóndinn lagði á borð og spurði: "Viltu sultu með matnum?" Hann skilur nefnilega ekki að íslendingar borða sultu með lamba og svínasteik, en ekki með fiski eða beikoni.

11.10.08

Loftnet

Frá barnæsku hefur húsbóndinn á heimilinu verið heillaður af fjarskiptum og öllu sem slíku viðkemur. Sérstaklega eru það loftnet, allt frá hversdagslegum sjónvarpsloftnetum uppí risastór möstur. Hann veit allt um þau sem hægt er að vita. Veðrið var gott í dag, svo familían fór í bíltúr, að skoða mastrið á Black Hill, en þaðan kemur sjónvarpið til okkar. Þið getið rétt ímyndað ykkur hvað þetta var spennandi fyrir okkur Tess. Hún var svo heppin að finna kanínuþef, en ég varð að láta mér nægja að taka mynd af herlegheitunum. Sem betur fer fundum við góða kaffistofu í nálægu þorpi, þar sem ég fékk kaffisopa og gómsæta gulrótarköku.

9.10.08

Jukkusaga


Þegar sólstofan var ný keypti ég mér litla og netta yukku. Hún óx, var umpottað, óx meira og var enn umpottað, og í vor var hún orðin svo stór að það var varla pláss fyrir neitt annað í sólstofunni. Hún eyddi því sumrinu úti í garði. Og óx. Ég veit ekki hvað ég get gert við hana, hún er núna í gestaherberginu og hálf fyllir það. Þetta er ekki í fyrst sinn sem stofuplöntur gera mér þennan grikk. Vaxa og vaxa. Víst er að yukkan er ekki beint falleg lengur. Engin stofuprýði. Hvað er til ráða? Ekki fleygir maður þessu, eða hvað?

8.10.08

Ísland í fréttunum

Hvað er eiginlega að gerast heima? Ég orðlaus yfir þessu öllu. Ísland er stöðugt í fréttunum hér á BBC, aðallega vegna IceSave, sem fór á hausinn í gær. Vinafólk okkar átti þar peninga, sem þau fá vonandi bætta. Ég fylgist með Mogganum á netinu, og hlusta á fréttir á RÚV og hef áhyggjur af aurunum mínum, sem ég vann fyrir hörðum höndum og geymi hjá Landsbanka og Glitni. Þvílíkt og annað eins. Ná engin lög yfir þessa menn?

23.9.08

Það hefur ekki rignt í þrjá daga!

Fjölskyldan fór í ferðalag í dag, upp í hálendið norðan við Glasgow. Það er strjálbýlt og mjög fallegt, og við fórum í smá göngutúr um skóglendið. Myndavélin var með, en þessi sveppur er nú það sem mér fannst merkilegasta myndefnið.

19.9.08

Nokkuð nýtt?

Nei, ekkert að frétta. Í gær fórum við í matarinnkaup fyrir hádegi og eftir hádegi tók ég smá húsverkatörn. Eftir þrjúkaffið, sem er mjög fastur liður á heimilinu, fórum við í apótekið, og í göngutúr í skóglendinu bak við apótekið. Það er einn að uppáhaldsgöngutúrum Tess, því það búa þar kanínur. Það hellirigndi. Við höfðum kjötbollur í matinn.
Í morgun fórum við Tess niður að á, þar sem hún fékk sér góðan sundsprett. Ég hitti kunningjakonu, sem labbaði með okkur heim. Í dag fer ég í “te” til Eleanor vinkonu minnar, sem er nýkomin af spítala. Ég ætla að taka með mér kökur, tímarit og spennandi bók handa henni. Ég ætla að hafa steikta ýsu í kvöldmatinn.

10.9.08

Löberinn

Þegar mánuðirnir byrja að enda á -ber, þá dreg ég fram jólalöberinn. Oftast sauma ég bara nokkur spor á hverju hausti, því það er svo erfitt að telja út og horfa á sjónvarp á sama tíma. Ég er búin að vera að sauma þennan löber í átta ár en er enn ekki hálfnuð. Löberinn var áður í fórum Huju heitinnar frænku minnar. Hún átti það til að kaupa sér allskonar útsaums verkefni, sem hún kom ekki alltaf í verk að sauma. Áður en hún flutti í Sunnuhlíð gaf hún mér þennan löber, ásamt klukkustreng og veggstykki. Ég er búin að sauma smávegis af klukkustrengnum, en er ekki byrjuð á veggstykkinu. Ég hlakka til að fást við þessar bróderingar – einhverntíma í framtíðinni. Þegar ég er búin með löberinn.

Ertu að hekla?
Húsbóndinn er ekki vel að sér um hannyrðir kvenna. “Hvað ertu að prjóna?” spurði hann. “Nei, ég er að hekla dúllu” svaraði eiginkonan myndarlega. Þegar hún gróf upp löberinn góða og hóf krosssaumaskap spurði hann: “Ertu að hekla?”

Gufan

Við erum búin að kaupa okkur “net útvarp.” Þetta er tæki sem tengist þráðlaust við innanhúss kerfið og internetið, svo við getum hlustað á allar þær tíu þúsund útvarpsstöðvar sem senda út á netinu. Þar á meðal Útvarp Reykjavík. Mikið finnst mér notalegt að hlusta á gömlu gufuna á meðan ég fæst við eldhúsverkin. Veðurfregnir, tilkynningar, Óskalög Sjómanna, morgunleikfimi með Halldóru Björnsdóttur. Ég hef meira að segja gert æfingarnar núna í nokkra morgna. Þær eru greinilega ætlaðar gömlu og stirðu fólki, og henta mér því vel núna.

6.9.08

Gamlingjar

Eftir tveggja tíma törn í garðinum sitjum við hér bæði tvö, gjörsamlega uppgefin. Við vorum að snyrta til, klippa ofvaxna runna og hreinsa úr sér vaxnar plöntur. Við erum orðin svo ellihrum að það þarf ekki meira til. Það er alveg á hreinu að ég þarf að fara að ráða staff. Garðyrkjumann, og afhverju ekki húshjálp? En ansi er ég nú smeik um að það yrði erfitt að fá húsbóndann til að samþykkja slíkt bruðl.

2.9.08

Rauð sólblóm

Ég sáði sólblómafræjum í vor, eins og ég hef gert undanfarin ár. Þau eru hávaxin og blómstra seint. Í ár eru þau ekki gul, heldur rauð. Glæsilegt!