8.4.08

Halló!!!

Er einhver þarna? Samkvæmt teljaranum hefur ekki sála komið í heimsókn síðan á föstudag. Vonandi er teljarinn í ólagi.

4.4.08

Lúksus


Posted by Picasa
Við héldum uppá 11 ára (ELLEFU!) brúðkaupsafmæli okkar í gær með því að fá okkur hádegismat á fínasta hótelinu hér um slóðir, Mar Hall. Rosa flott.

Hér má sjá William nýklipptan í matsalnum.

28.3.08

Út um gluggann

Er búið að gefa fuglunum?

Íkorni á hvolfi

Gott í gogginn.


Það er alldeilis lúksus að geta setið inni í hlýjunni og tekið dýralífsmyndir út um gluggann.

25.3.08

Íkornatetur


Hér er mikið um íkorna og þeir eru duglegir við að rupla fuglafóðrinu, sérstaklega hnetum. Það er svo sem allt í lagi, þeim eru velkomnar hneturnar, ef þeir hefðu ekki þann leiða sið að naga fóðurstaukinn til óbóta. Þeir hafa svo sterka kjálka að þeir geta bitið sundur vírnet. En fallegir eru þeir, greyin.
Posted by Picasa

23.3.08

Páskadagsgönguferð

Það var kalt, hvasst, og gekk á með slydduéljum. Tess fannst samt allt í lagi að draga okkur út að ganga.
Posted by Picasa

Gleðilega páska!

Páskahretið lét sig ekki vanta í ár, það skall á með norðanátt í vikunni. Það hefur verið hvasst og nístingskalt, einstaka slydduél, en við höfum sloppið við snjóinn. Mig klæjar í fingurna að byrja í garðinum, en það er einfaldlega alltof kalt úti. Mér finnst hálf asnalegt að hlusta á allt þetta rugl í fjölmiðlum um "global warming." Ég myndi alveg þiggja smá skammt.

21.3.08

Heillaskeyti

Þetta fann ég á botninum á gamla kistlinum mínum. Ég hef eflaust séð það áður, þó ég muni ekki eftir því. Heillaskeyti til mömmu, Sjúkrahúsinu Ísafirði. Sent 24.12 1942, frá fjölskyldu hennar í Búð í Hnífsdal. Gleðileg jól og til lukku með dótturina. Ég var þá vikugömul.

19.3.08

Lífsmark!

Ég er aftur komin í gang, eftir smá heilsubrest. Þessa mynd tók ég rétt áðan út um gluggann, með aðdráttinn á fullu. Þetta kallast "greenfinch" - grænfinka?

9.3.08

Sunnudagsbíltúrinn

Það sást til sólar eftir hádegið, svo það var lagt af stað í smá sunnudagsbíltúr. Með myndavélina í farteskinu, náttúrulega. Það er ekki nema 20 mín keyrsla til Loch Winnoch, þar sem er göngustígur meðfram vatninu, og mikið um fugla.
Þegar við vorum komin hálfa leið dimmdi alltíeinu í lofti og fór að rigna, og rétt á eftir sáum við skilti við vegarkantinn þar sem á stóð að vegna vegavinnu væri afleggjarinn niður að vatninu lokaður. Umferð þyngdist allt í einu, og við sátum í langri biðröð. Rigningin varð að hellidembu.
Þegar við komumst út úr umferðateppunni ákvað bílstjórinn að snúa við og fara aðra leið til baka, til að sleppa við umferðina. Bílgluggarnir voru þaktir móðu, svo illa sást út og á næsta hringtorgi var óvart valinn vitlaus vegur. Til að bjarga málinu var snarlega beygt inná sveitaveg, en það kom fljótt í ljós að þetta var heimreið að litlum sveitabæ, þröng og holótt. Rigningin breyttist í þétt haglél, og bóndinn kom keyrandi á stórum traktor með kerru aftaní. Með miklum tilfæringum tókst loksins að snúa við - fyrir framan fjósdyrnar - og með enn meiri tilfæringum tókst að mjaka bílnum framhjá traktornum. Bóndinn var óblíður á svipinn.
Þegar við fundum veginn aftur var haldið beinustu leið heim, og þegar við renndum inná stæðið framan við húsið birti til og sólin fór að skína. Þetta er skýringin á því að það fylgja þessari frásögn engar myndir.

7.3.08

Veðrið

Hérlendis talar fólk mikið um veður. Hitti maður einhvern á morgungöngunni er sagt: "awful weather" eða "nice day." Svo er gjarnan bætt við, svona til huggunar og eftir aðstæðum, "at least it is not too cold" eða "at least it is dry." Veðrið í vetur hefur verið alveg ótrúlega niðurdrepandi, og enn er slæm spá. Rigning, slydda, hvassviðri, rok, og meiri rigning. Þá vetur sem ég hef verið hér, og þeir eru orðnir ansi margir, hafa alltaf komið góðir kaflar, og það sem mér hefur fundist best er hvað vorar snemma. Í ár hefur þetta allt vantað. Ég sit hér og skrifa þetta yfir morgunteinu, og er á leið út í þetta veður með minn gamla hund. Gallabuxur, úlpa, vaðstígvél.

4.3.08

Tilhugalíf

Þetta nýtrúlofaða par er búið að velja sér hreiðurstað í einum runnanum í garðinum, og þau láta snjó on kulda ekkert á sig fá.
Posted by Picasa

3.3.08

Lengi getur vont veður versnað!


Þegar ég kom út í morgun var allt orðið hvítt. Það er ekki nógu kalt til að þetta festi almennilega, svo garðurinn, stéttin og gangstígarnir eru þaktir krapi. Fuglagreyin héldu að vorið væri að koma.

1.3.08

Uppstytta

Það koma sólarglæta eftir hádegið, svona rétt á milli rigningarskúranna, svo ég fór út í garð og tók mynd af nokkrum vorboðum. Ég er búin að eiga nýju myndavélina í næstum þrjár vikur, en get varla sagt að ég hafi prófað hana almennilega enn. Tvisvar hef ég reynt að sitja dúðuð bak við hús með vélina á þrífóti og aðdráttinn á fuglaborðið, en bæði skiptin orðið frá að hverfa vegna veðurs.
Posted by Picasa

28.2.08

Stress

Lífið hér á bæ er svo fábrotið að ef eitthvað stendur til veldur það meiri háttar röskun á rólegheitunum. Þannig er að einu sinni á ári fer húsbóndinn með bílinn í tékkun á verkstæði. Undirbúningurinn og eftirköstin eru með endemum, það mætti halda að um heimsreisu væri að ræða. Mörgum dögum áður er farið að skoða langtíma veðurspár. Svo er valinn skásti dagurinn, því honum líkar illa að fara úr húsi ef það er hvasst, rigning, snjókoma, frost eða þoka. Dagurinn í gær varð fyrir valinu. Undirbúningur fólst í að þvo og ryksuga bílinn, hafa öll gögn tilbúin, planleggja rútuna og muna eftir að taka veskið, (það gleymist stundum!). Hann fór óvenju snemma á fætur og af stað. Þegar hann svo sótti bílinn seinni partinn í gær hófst venjulegur eftirmáli. Allt er grandskoðað, hvað var hert og hvað var smurt og hvað var trassað. Það kom svo í ljós að forláta króm ventilhettur sem voru á hjólunum höfðu verið teknar af, illa settar á aftur og ein var týnd. Eitt og annað fann hann líka sem illa eða ekki hafði verið gert. Þetta allt fékk afskaplega á hann, svo hann hringdi í umboðið til að kvarta. Vandamálið er bara að hann er svo mikið ljúfmenni að hann kann ekki að rífast og skammast. Ventilhetturnar voru þó bættar, svo nú er róin blessunarlega farin að færast aftur yfir heimilislífið.

26.2.08

Veður Vott

Nú er úti veður vott
Verður allt að klessu.

Rok og rigning, í gær, í dag, kannske á morgun líka. Við Eleanor hittumst eins og venjulega og ösluðum í gegnum leðjuna styttri hundagönguhringinn. Við mættum nokkrum af hópnum á leiðinni, allir eins og af sundi, allir hundarnir blautir og drullugir. Mikið var gott að koma heim, fara í þurrt og fá sér heitan sopa.

25.2.08

Hversdagskveðja

Innra með mér hef ég alltaf dásamað hversdaginn. Þar á ég við svona venjulega daga, þegar ekkert sérstakt er á seiði, ekkert alvarlegt bjátar á, og allir eru sáttir við hvern annan. Þegar lífsleiðin er að mestu gengin, með öllum sínum áföllum, sorgum og eftirsjá, eru slíkir dagar kærkomnir. Að vakna á venjulegum tíma, fara í hversdagsfötin, gera það sem maður gerir venjulega, hafa fisk í matinn. Taka til, lesa bók, horfa á sjónvarp. Njóta þess að vera á sínum stað, með sínum nánustu.
Góðan og blessaðan daginn!

21.2.08

Ella og pabbi að borða

Í eldhúsinu í Skriðu, ca 1947. Það eru kjötbollur í matinn. Dúkurinn á borðinu er grænn vaxdúkur með hvítum doppum. Það sést inní borðstofuna, síminn er á veggnum. Uppá símanum, lítill tréhestur. Hann á ég enn. Til vinstri í borðstofunni eru "porterar" (hengi) fyrir framan dyrnar inní "fínu stofuna." Þetta litla brot af fortíðinni er varðveitt á mynd sem Halli bróðir tók á kassavélina sína.
Posted by Picasa

19.2.08

Tess

Hún Tess okkar er orðin tíu ára. Í ágúst sl. fann dýralæknirinn æxli í einu júgrinu á henni, sem nú hefur stækkað. Við fórum með hana í tékkun í gær, og okkur var sagt að það væri yfirleitt ekkert hægt að gera fyrir hund á hennar aldri. Skurðaðgerð myndi ekki breyta neinu, því ef þetta er illkynja er það yfirleitt búið að sá sér áður en það finnst. Þetta fékk mikið á okkur, Tess er það sem allt snýst um hjá okkur. En hún er hress og kát, ekki með nein sjúkdómseinkenni, svo við dekrum bara við hana, og látum henni líða sem best meðan við fáum að hafa hana hjá okkur.

18.2.08

Ég man ...

Mamma var alltaf döpur 18. febrúar. Þessi dagur var sorgardagur, ekki dagur til að hlæja, skemmta sér eða segja brandara. Þann 18 febrúar 1910 féll nefnilega snjóflóð í Hnífsdal, þar sem hún ólst upp, og tuttugu manns fórust. Amma og Bogga uppeldissystir hennar lentu í flóðinu, en var bjargað. Þetta gerðist áður en mamma fæddist, (hún fæddist í júní sama ár) en hún minntist þess samt alltaf, og óttaðist að eitthvað hræðilegt myndi gerast þennan dag.
Bogga frænka lenti svo aftur í snjóflóði árið 1947, þá búsett á Karlsá á Ísafirði. Flóðið tók húsið út á poll, en Bogga bjargaðist. Henni hafði allt í einu dottið í hug að sópa í kringum miðstöðvarketilinn, sem var í eina steinsteypta herbergi hússins.

16.2.08

Músagangur

Við erum búin að veiða fimm mýslur í bílskúrnum á jafnmörgum dögum , ef þetta er ekki alltaf sama músin, því við notum gildrur sem ekki skaðar mýsnar, og sleppum þeim úti í garði.
Þetta eru skógarmýs, ótrúlega falleg dýr, og það er mikið um þær hér í náttúrunni allt í kringum okkur. Þær hafa alltaf búið hér, við erum nýbúar á þeirra svæði. Það er því eðlilegt að þær leiti inní hlýjuna þegar kalt er úti. Verst hvað þær eru duglegar við að naga bókstaflega allt mögulegt. Ég nota eina hillu í bílskúrnum fyrir forðabúr, fyrir dósamat og þessháttar, og mýsnar voru búnar að fjarlægja límmiðann af óupptekinni barbecue sósu flösku sem ég átti þar. Tómatsósuna létu þær vera. Í gömlum skó sem ég nota í garðinum var forðabúr, fuglafóður, ein var búin að hreiðra um sig í óhreinatauskörfunni. Myndina fann ég á netinu. Mínar mýs eru alltof fljótar að forða sér.