21.2.08

Ella og pabbi að borða

Í eldhúsinu í Skriðu, ca 1947. Það eru kjötbollur í matinn. Dúkurinn á borðinu er grænn vaxdúkur með hvítum doppum. Það sést inní borðstofuna, síminn er á veggnum. Uppá símanum, lítill tréhestur. Hann á ég enn. Til vinstri í borðstofunni eru "porterar" (hengi) fyrir framan dyrnar inní "fínu stofuna." Þetta litla brot af fortíðinni er varðveitt á mynd sem Halli bróðir tók á kassavélina sína.
Posted by Picasa

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Frábær mynd. Umhverfið er kunnuglegt, ég man vel eftir Dalahestinum. Ekki alveg eins viss um dúkinn, en man vel hvernig svona dúkar voru viðkomu. Dísa

housewife sagði...

Yndisleg mynd