Hversdagskveðja
Innra með mér hef ég alltaf dásamað hversdaginn. Þar á ég við svona venjulega daga, þegar ekkert sérstakt er á seiði, ekkert alvarlegt bjátar á, og allir eru sáttir við hvern annan. Þegar lífsleiðin er að mestu gengin, með öllum sínum áföllum, sorgum og eftirsjá, eru slíkir dagar kærkomnir. Að vakna á venjulegum tíma, fara í hversdagsfötin, gera það sem maður gerir venjulega, hafa fisk í matinn. Taka til, lesa bók, horfa á sjónvarp. Njóta þess að vera á sínum stað, með sínum nánustu.
Góðan og blessaðan daginn!

1 ummæli:
svona líða þeir svo margir hjá....
....
....og svo er allt í einu kominn mars!
Skrifa ummæli