Þoka
Veðurfarið hefur verið þolanlegt þessa viku, og við William höfum verið dugleg og farið í hressandi göngu á hverjum morgni. Í gær fórum við líka í langan göngutúr seinnipartinn. Nú er hinsvega niðaþoka, og ég er ekkert áfjáð í útivist. Ég hlýt að eiga inneign eftir að hafa farið í tvo göngutúra í gær, en William þvertekur fyrir að það megi að flytja göngutúrainneign milli daga.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli