Flugeldar
Hér var "bonfire night" í gær, til að minnast Guy Fawkes, en hann gerði misheppnaða tilraun til að sprengja upp þinghúsið í London árið 1603. Fólk kveikir í bálköstum og sendir upp flugelda. Allt er þetta nú í minni kantinum, og jafnast ekki á við Gamlárskvöld í Reykjavík.
Ég er ekki hrifin af flugeldum, vegna þess að ég veit hvað dýrin, bæði húsdýr og vilt, hræðast þetta. Rebbinn sem við gefum alltaf smá bita á kvöldin lét ekki sjá sig, hefur líklega kúrt nötrandi í greninu sínu, og ég get rétt ímyndað mér hvað fuglarnir hljóta að hafa verið hræddir. Heimilisdýr eru mörg á róandi lyfjum þetta kvöld. Hinsvegar var hún Tess okkar aldrei hrædd, sem betur fer, og ég man ekki betur en þegar ég átti páfagaukinn Teresu, þá hafi ég oft staðið við gluggann heima á Gamlárskvöld með hana á öxlinni, vaggandi sér af spenningi, fylgjandi hverri rakettu með augunum.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli