Útför
Einn af stofnendum leshópsins míns dó út beinkrabbameini um daginn, aðeins þremur mánuðum eftir að hann greindist með sjúkdóminn. Hann gekk örugglega með þetta í nokkur ár, án þess að hafa hugmynd um það.
John var maður sem lifði lífinu fram í fingurgóma. Hann fylgdist með öllu sem var að gerast á menningarsviðinu og var best lesni maður sem ég hef kynnst. Hann hafði þann sið að skrifa alltaf niður titla þeirra bóka sem hann las, og gefa þeim einkunn, frá 0-10. Þetta hafði hann gert alla ævi og var listinn orðinn langur.
Við vorum við útför Johns á þriðjudaginn. Mikill fjöldi fólks var við athöfnina, sem fór fram að sið humanista. John var ekki trúmaður, en hann var formaður heimspekifélagsins í Glasgow. Svo vill til að í leshópnum er kona sem sér um "helgi" athafnir humanista, og hún sá um útförina, skv hans ósk. Minningarorð voru flutt af Barry, leshópsfélaga og vini Johns, og Claire, dóttir Johns las ljóð. Tóslistin var afar falleg - klassísk og valin af fjölskyldunni. Þetta var falleg athöfn. Nú er bara að sjá hvort leshópurinn okkar lifir af þennan mikla missi.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli