Klukkuhringl, enn og aftur.
Í nótt á að seinka klukkunni, vetrartíminn hér er sami tími og er heima. Það þýðir að í fyrramálið þegar ég vakna, líklega klukkan 6, þá verður klukkan bara 5. Ég ætla samt á fætur. Ég ætla að laga mér kaffisopa og setjast í stólinn minn og breiða teppi yfir hnén, og lesa. Ég á peninga inni hjá Amazon, svo ég get sótt mér einhverja spennandi rafbók, eða kannske væri skynsamlegra að klára að lesa þessar þrjár eða fjórar hálflesnu sem eru á tölvunni.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli