15.2.08

Nýja myndavélin


Eftir fjögurra ára dygga þjónustu er litla Sony myndavélin mín farin að þreytast. Hún tekur enn góðar myndir, en batteríin endast illa. Mér fannst því tími kominn til að fá mér nýja vél. Spurningin var hvort ég ætti að kaupa litla, létta vél sem ég gæti haft með mér í vasanum hvert sem ég færi, eða vél með góðum aðdrætti til að taka myndir af fuglum. Ég tók síðari kostinn, og keypti mér Panasonic Lumix, með 18x zoom linsu. Þetta er frábær vél, sem ég kann enn ekki að nota, og ligg yfir manualnum öllum stundum. Fuglamyndirnar tók ég við nálægt stöðuvatn, Loch Winnoch, út um bílgluggann. Það var of kalt til að norpast úti!

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Flottar myndir. Dísa