13.1.07

Country Living

Í glanstímaritum má sjá tweedklæddar hefðarfrúr halla sér uppað snyrtilegri hestagirðingu, í glansandi leðurstígvélum og með vel burstaða veiðihunda sér við hlið, eða þá þær ganga um rósagarðinn með körfu á handleggnum og tína blóm. Ekkert er eins fjarri sanni. Raunveruleikinn erum við Eleanor, bagsandi, blautar og forugar, á móti stormi og regni, í úlpum, grænum vaðstígvélum og með húfur niður fyrir eyru, með Rory og Tess, álíka blaut og drullug, okkur við hlið. Í hendinni höldum við svo á pokum með því sem ábyrgir hundaeigendur skilja aldrei eftir á víðavangi.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Sá er einmitt munurinn á alvöru og ímyndun. Það er ítill vandi að búa til glansmynd, en glansinn fer af í alvörunni.