Steinhæðin
Þetta er mynd af steinhæðinni minni, tekin árið 2001. Snyrtilegar litlar steinhæðarplöntur, smágerðir runnar og vel skipulagðar raðir af sandsteinum. Allt var afskaplega nett og sætt. Svo liðu nokkur ár . . .
. . . og svona lítur steinhæðin út í dag. Algjört skipulagsleysi. Litlu plönturnar eru sumar dauðar, en aðrar orðnar að risum. Það hefur hvarflað að mér að ráðast á óræktina og rífa þetta allt upp mað rótum - og byrja svo uppá nýtt - en steinhæðin fyrrverandi ætti eiginlega að fara á náttúruverndarskrá. Þarna býr nú fjöldi smáfugla, ég hef ekki tölu á hreiðrunum, og í holum kringum steinana er skógarmúsabyggð. Íkornar eru daglegir gestir. Ég sit löngum stundum og bara horfi og dáist að lífinu í steinhæðinni. 
1 ummæli:
Dýralífið þarna er allt of fallegt til að verjandi sé að rífa allt upp. Mér fannst svo yndislegt að horfa á það þegar ég var hjá ykkur.
Skrifa ummæli