9.7.07

Rebbi litli

Þegar skyggir á kvöldin kemur rebbi litli í heimsókn. Þetta er stálpaður yrðlingur, alveg ótrúlega fallegur, og ég get ekki stillt mig og lauma út smá bita af hundamat fyrir hann. Í kvöld kom bróðir hans með honum og þeir léku sér góða stund í eltingaleik í garðinum.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Það er svo gaman að gefa þeim og horfa á þá éta að það er ómótstæðilegt. Ég gef alltaf rebbubum í Aðalvík þegar ég er þar, og þeir eru svo yndislega rólegir að éta bitann sinn. Ekkert að stökkva burtu nema eitthvað fæli þá.