23.9.08

Það hefur ekki rignt í þrjá daga!

Fjölskyldan fór í ferðalag í dag, upp í hálendið norðan við Glasgow. Það er strjálbýlt og mjög fallegt, og við fórum í smá göngutúr um skóglendið. Myndavélin var með, en þessi sveppur er nú það sem mér fannst merkilegasta myndefnið.

19.9.08

Nokkuð nýtt?

Nei, ekkert að frétta. Í gær fórum við í matarinnkaup fyrir hádegi og eftir hádegi tók ég smá húsverkatörn. Eftir þrjúkaffið, sem er mjög fastur liður á heimilinu, fórum við í apótekið, og í göngutúr í skóglendinu bak við apótekið. Það er einn að uppáhaldsgöngutúrum Tess, því það búa þar kanínur. Það hellirigndi. Við höfðum kjötbollur í matinn.
Í morgun fórum við Tess niður að á, þar sem hún fékk sér góðan sundsprett. Ég hitti kunningjakonu, sem labbaði með okkur heim. Í dag fer ég í “te” til Eleanor vinkonu minnar, sem er nýkomin af spítala. Ég ætla að taka með mér kökur, tímarit og spennandi bók handa henni. Ég ætla að hafa steikta ýsu í kvöldmatinn.

10.9.08

Löberinn

Þegar mánuðirnir byrja að enda á -ber, þá dreg ég fram jólalöberinn. Oftast sauma ég bara nokkur spor á hverju hausti, því það er svo erfitt að telja út og horfa á sjónvarp á sama tíma. Ég er búin að vera að sauma þennan löber í átta ár en er enn ekki hálfnuð. Löberinn var áður í fórum Huju heitinnar frænku minnar. Hún átti það til að kaupa sér allskonar útsaums verkefni, sem hún kom ekki alltaf í verk að sauma. Áður en hún flutti í Sunnuhlíð gaf hún mér þennan löber, ásamt klukkustreng og veggstykki. Ég er búin að sauma smávegis af klukkustrengnum, en er ekki byrjuð á veggstykkinu. Ég hlakka til að fást við þessar bróderingar – einhverntíma í framtíðinni. Þegar ég er búin með löberinn.

Ertu að hekla?
Húsbóndinn er ekki vel að sér um hannyrðir kvenna. “Hvað ertu að prjóna?” spurði hann. “Nei, ég er að hekla dúllu” svaraði eiginkonan myndarlega. Þegar hún gróf upp löberinn góða og hóf krosssaumaskap spurði hann: “Ertu að hekla?”

Gufan

Við erum búin að kaupa okkur “net útvarp.” Þetta er tæki sem tengist þráðlaust við innanhúss kerfið og internetið, svo við getum hlustað á allar þær tíu þúsund útvarpsstöðvar sem senda út á netinu. Þar á meðal Útvarp Reykjavík. Mikið finnst mér notalegt að hlusta á gömlu gufuna á meðan ég fæst við eldhúsverkin. Veðurfregnir, tilkynningar, Óskalög Sjómanna, morgunleikfimi með Halldóru Björnsdóttur. Ég hef meira að segja gert æfingarnar núna í nokkra morgna. Þær eru greinilega ætlaðar gömlu og stirðu fólki, og henta mér því vel núna.

6.9.08

Gamlingjar

Eftir tveggja tíma törn í garðinum sitjum við hér bæði tvö, gjörsamlega uppgefin. Við vorum að snyrta til, klippa ofvaxna runna og hreinsa úr sér vaxnar plöntur. Við erum orðin svo ellihrum að það þarf ekki meira til. Það er alveg á hreinu að ég þarf að fara að ráða staff. Garðyrkjumann, og afhverju ekki húshjálp? En ansi er ég nú smeik um að það yrði erfitt að fá húsbóndann til að samþykkja slíkt bruðl.

2.9.08

Rauð sólblóm

Ég sáði sólblómafræjum í vor, eins og ég hef gert undanfarin ár. Þau eru hávaxin og blómstra seint. Í ár eru þau ekki gul, heldur rauð. Glæsilegt!

1.9.08

Vanagangur

Þegar lífið gengur sinn vanagang er ekki frá mörgu að segja. Tess er svo til batnað, en ég fékk illa í bakið fyrir þremur vikum, og gekk við staf. Mig grunar að það hafi verið vegna þess að Tess gat ekki farið út að ganga eins og venjulega, svo ég stirðnaði upp. Við erum nú aftur farnar að fara út að labba á morgnana og lengjum göngurnar smátt og smátt.
Það rignir eins og hellt úr fötu þessa stundina, en það er ekkert nýtt, það rigndi allan ágúst. Í fyrra rigndi líka allan ágúst, og hélt áfram allan veturinn. Hér þarf maður að sætta sig við vætuna og að vaðstígvélin eru best.

24.8.08

Medalíur

Bretar, og þá einkum bretinn eiginmaður minn, eru ákaflega stoltir af árangri sínum á Ólympíuleikunum. 48 medalíur fengu þeir. Ég benti honum á að bretar eru 64 milljónir talsins. Það myndi því teljast vera svona circa ein medalía á hverja 1.300.000 íbúa. Það þykir okkur íslendingum aumingjaleg frammistaða, því við fengum rúmlega fjórum sinnum meiri medalíu - miðað við íbúatölu náttúrulega.

10.8.08

Hundadagar

Fröken Tess er nú á batavegi eftir aðgerðina, okkur til mikillar gleði. Við höfum skipst á að vaka yfir henni, dag og nótt. Fyrstu sólarhringana leið henni illa, og við fórum með hana til dýralæknisins daglega til að fá verkjastillandi sprautu og fúkkalyf til að vinna endanlega á sýkingunni. Hún gat ekkert étið og átti bágt með að leggjast niður, svo hún staulaðist hér um húsið, vælandi þangað til hún gat ekki meira. Þetta er sem betur fer yfirstaðið, hún er farin að éta og getur gengið og sest og lagst. Aðal vandamálið núna er að passa að hún nagi ekki saumana á kviðnum.

6.8.08

Tess er komin heim

Við sóttum Tess á "spítalann" í gær. Hún var ekki farin að éta neitt eftir aðgerðina, og ég var beðin um að koma með dolluna hennar og eitthvað sem henni þætti gott. Hún var afskaplega glöð að sjá okkur og fór strax að borða kjúklinginn sem ég færði henni. Hún er voða aum öll og á bágt, skjögrar um og veit ekki hvar hún vill vera. Við skiptumst á að vera hjá henni, hún er aldrei ein. Hún á að fara til dýralæknisins í hádeginu, og fá sprautu.

3.8.08

Heilsufar

Okkar líf snýst um Tess, og það gengur á ýmsu. Þegar hún veiktist var okkur sagt það væru líklega æxli í lungum og/eða lifur, og stutt eftir. Fúkkalyf sem henni voru gefin gerðu samt kraftaverk, og á föstudaginn var elsti og reyndasti dýralæknirinn komin úr sumarfríi, skoðaði Tess og sagði að þetta væri sýking í legi. Tess er nú á sterkum fúkkalyfjum, og ef lungun eru í nógu góðu ástandi fer hún í stóra aðgerð á næstunni. Ef ekki, þá missum við hana. Auðvitað vitum við að hundar lifa ekki að eilífu, og það kemur að því fyrr eða síðar að hún fer, en við viljum hafa hana hjá okkur eins lengi og nokkur kostur er.

27.7.08

Skárri

Tess er farin að éta og við fórum smá göngutúr í kvöld. Hún er miklu hressari, svo lyfin hjálpa. Hún labbar eins og fyllibytta, en lætur það ekki trufla sig. Það þarf að þefa af hverju strái.Posted by Picasa

Tíu og hálft ár

Í rúman áratug höfum við verið lítil og óaðskiljanleg fjölskylda. Við þrjú. Við höfum varla verið án hvers annars í meira en nokkra klukkutíma í einu, og endurfundir hafa alltaf verið gleðilegir. Sú sem allt hefur snúist um, okkar heittelskaða Tess, er nú mikið veik. Hún veiktist aðfaranótt föstudags, var reyndar búin að vera lasin áður, en hresstist. Við fengum dýralækni heim, og hún fór á dýraspítalann í rannsókn. Allt bendir til þess að hún sé komin með krabbamein í lifur. Hún kom aftur heim í gær, og við skiptumst á að sitja hjá henni, dag og nótt. Þetta eru erfiðir tímar.

23.7.08

Nú er sumar . . . o.s.frv


Það er 22 stiga hiti og glaðasólskin í dag.


Eldhúsdyrnar. Við keyptum lítið borð og tvo stóla í vor sem við notum mikið.

Eldri hluti garðsins. Hér þarf að fara að "trimma" aðeins.
Gróðurinn er orðinn of hávaxinn.

"Nýji garðurinn". Hér vantar ekki litina.

Ég sáði blómafræjum kringum gamla trjástofninn.

Lavatera. Uppáhalds plantan okkar.

Þetta kallaðist "hortensía" í gamla daga á Ísafirði, og var stofublóm. Hér heitir þetta "hydrangea" og vex vel utandyra.

15.7.08

Sumarkvef

Hósti, hnerrar og stöðugar snýtur. Hausverkur og kverkaskítur. Ekki bara ég, heldur við bæði. Fórum samt í göngutúr í gær, ég tók nokkrar myndir.

5.7.08

Engin mynd

Ég geng niður með ánni hér svo til daglega. Tess veit ekkert skemmtilegra en að snuðra um í gróðrinum og busla í ánni. Öðrumegin árinnar er flatlendi, hinn bakkinn er brattari og þar vex hávaxinn gróður og sef og þar heldur sig gjarnan myndarlegur gráhegri. Ég hef oft reynt að ná mynd af þessum fugli, en það er ekki einfalt. Gamla myndavélin hafði ekki nógu góðan aðdrátt, en síðan ég fékk þá nýju hef ég gert margar tilraunir til að taka mynd af hegranum, en þegar myndavélin er höfð með i morgungönguna, þá sést enginn fugl. Þegar ég er myndavélarlaus, þá stillir hann sér upp í sefinu, reigir hálsinn og stendur grafkyrr.
Í morgun fórum við Tess snemma, tvær einar. Hegrinn myndi örugglega vera á árbakkanum að veiða sér í morgunmatinn. En það sást enginn fugl. Tess óð út í ána, og fiskur spratt uppúr vatninu fyrir framan hana. Hún var alveg forviða og reyndi að elta hann. Auðvitað gerðist það of hratt fyrir mig og mína myndavél! Ætli það sé ekki skynsamlegast fyrir mig að taka bara myndir af blómum.

24.6.08

Uppáhaldsfugl

Þetta er spæta, eða "great spotted woodpecker." Þetta er sjaldgæfur og styggur fugl, en hneturnar eru ómótstæðilegar og hann hefur gogginn til að ná þeim. Ég tók þessa mynd út um gluggann í morgun. Því miður flaug einn svona fugl á rúðu hjá okkur í síðustu viku, og dó. Þeir fljúga geysihratt, og hann hefur líklega blindast af sól. Það var mikið áfall.

20.6.08

Ég er svartþröstur

Fyrir þremur vikum var ég egg, en nú er ég orðin stór, og kann að fljúga. Ég á heima í garði þar sem eru ýmis þægindi. Góðir runnar til að fela sig undir, matur er borinn fram tvisvar á dag, og svo er hér ágætt fuglabað.

Ég er einkabarn, líklega hefur einhver gætt sér á systkynum mínum, svo mamma passar mig vel. Hún rekur alla fugla í burtu með látum, meira að segja pabba minn, og flýgur skrækjandi upp og ræðst á dúfurnar þegar þær koma inn til lendingar. Þær gætu nefnilega verið ránfuglar.



Baðið er hressandi.






Hér er ég með mömmu minni. Hún matar mig enn, en ég er að læra að borða sjálf. Uppáhaldsmaturinn okkar beggja eru epli.

15.6.08

Litaval


Það er eins og garðurinn viti hvaða litir passa best saman. Fyrst í vor var allt í gulu, svo tóku bláklukkurnar við, en nú er það hvítt og fjólublátt. Allt í stíl. Þetta er ekki verk garðyrkjusnillings, heldur bara óvart. Hér var plantað samansafni af afgöngum úr öðrum beðum, gjöfum frá nágrönnum og vinum og slatta af plöntum úr gróðrarstöðinni, að ógleymdum "foxgloves" - sem vaxa villtir hér um allt.

1.6.08

Sólskin á sunnudegi

Svona fallegt sóleyjahaf veldur því að við getum ekki hugsað okkur að slá.

Bóndarósin var upphaflega í garðinum hans Williams í Renfrew,
en við tókum hana með hingað. Tíu árum seinna blómstrar hún enn.

Valmúar og kornblóm.