Tíu og hálft ár
Í rúman áratug höfum við verið lítil og óaðskiljanleg fjölskylda. Við þrjú. Við höfum varla verið án hvers annars í meira en nokkra klukkutíma í einu, og endurfundir hafa alltaf verið gleðilegir. Sú sem allt hefur snúist um, okkar heittelskaða Tess, er nú mikið veik. Hún veiktist aðfaranótt föstudags, var reyndar búin að vera lasin áður, en hresstist. Við fengum dýralækni heim, og hún fór á dýraspítalann í rannsókn. Allt bendir til þess að hún sé komin með krabbamein í lifur. Hún kom aftur heim í gær, og við skiptumst á að sitja hjá henni, dag og nótt. Þetta eru erfiðir tímar.

1 ummæli:
Leitt að frétta af aumingja Tess. Vonandi tekur það fljótt af ef henni getur ekki batnað. Það verður stórt tómarúm eftir.
Kveðja, Dísa
Skrifa ummæli