21.10.11

Spánarmyndir



Vikan á Spáni var einstaklega vel heppnuð. Sólin skein, hótelið var gott, og maturinn var fyrsta flokks. Það besta var að Halli og Sísí komu frá Torrevieja, og voru í tvo daga með okkur í Calpe.
Verst hvað tíminn leið fljótt. Nú erum við komin aftur heim í rigninguna, en ég er endurnærð og full af D-vítamíni, svo nú tekst ég á við veturinn.

10.10.11

Allt tilbúið

Búið að pakka niður, hlaða allar græjur, grafa upp sólhattinn (sem hefur ekki verið notaður lengi) og sandalana. Nú skal halda til sólarlanda. Hitinn á áfangastað er í kringum 30 stig, svo það verður "notalegt."
Brottför frá Glasgow er kl. 6:25 í fyrramálið, og við þurfum að tékka inn tveim tímum áður.  Það þýðir að við þurfum að fara á fætur um 3 leitið í  nótt!
Best að slökkva á tölvunni og koma sér undir sæng, þó mig gruni nú að ferðahugurinn eigi eftir að valda svefnleysi.

6.10.11

Kuldahrollur

Það er alltíeinu komið hrímkalt haust, og í morgun hefur gengið á með hvössum hagléljum. Við förum til Spánar á þriðjudaginn, og ég er ekki viss um að mig langi nokkuð að koma til baka. Ég kvíði fyrir vetrinum.

4.10.11

Rebbarnir



Litlu rebbarnir sem léku sér í garðinum í voru eru nú orðnir stórir. Ég sé þá sjaldnar, því þeir koma ekki í heimsókn fyrr en farið er að dimma, og nú dimmir snemma á kvöldin.   Matarbitinn sem ég set út á hverju kvöldi fyrir þá er alltaf horfinn, svo ég veit að þeir eru á ferli.  
Ég tók myndirnar út um eldhúsgluggann í lok júlí. Það var sól og þegar ég kom niður snemma morguns sá ég þá vera að sóla sig í garðinum. Ég flýtti mér og sótti myndavélina, sem auðvitað var batteríislaus. Varabatteríið var þó hlaðið, og þeir voru þarna enn þegar ég var tilbúin. Ég náði fjörutíu myndum af þeim - og þær eru allar góðar!




24.9.11

Næsti áfangastaður

Við erum búin að panta viku dvöl á Spáni í október. Þetta er nú meira flakkið á okkur! Þetta verður fjórða ferðalagið á árinu. (London, Frakkland, Ísland, Spánn). Við erum farin að hlakka til, og ég er búin að kaupa mér slatta af nýjum fötum. Vinkonur mínar Eleanor og Janet, sem koma alltaf í tesopa á laugardagsmorgnum, fengu smá tískusýningu áðan!  Allt í sömu sólarlandalitunum: blágrænt og hvítt.

13.9.11

Rok og meira rok

Í gær gekk fellibylurinn Katja yfir, þ.e.a.s. leifar af honum. Það var ansi hvasst, og geysi blautt. Í síðustu viku eyddum við tveimur heilum dögum í að þrífa allar stéttar og bílastæði, og hreinsa og snyrta garðinn. Í morgun var eins og ekkert hefði verið gert, allt þakið laufi, kvistum og drasli. Við erum í stöðugri baráttu við náttúruöflin, og garðurinn hefur aldrei verið óhrjálegri. Sumarið hefur verið afleitt, og þó við gerum okkar besta þegar veður leifir, þá er þetta fljótt að fara í sama horfið aftur. Spurningin er, hvað endumst við lengi, við erum jú farin að reskjast. 

1.9.11

Hvað kom fyrir?

Afhverju hætti ég að blogga?  Skýring er einfaldlega sú að síðan við komum úr einstaklega velheppnuðu fríi til Íslands höfum við ekkert gert eða farið.  Sumarið hefur verið leiðinlegt, kalt og rakt, og tilhugsunin um að það komi bráðum haust og svo vetur er ill bærileg. Kannske tekst mér að rífa mig uppúr þessari lægð, og byrja að blogga aftur. Vonandi.

10.7.11

Ferðalag

Við erum á leið til Íslands. Vélin fer í loftið klukkan 14:20 í dag, og við verðum heima í viku. Það eru tvö ár síðan ég var síðast heima. Ég var ein á ferð, og var frekar ömurlega á mig komin. Ég var óvenjulega slöpp, og kenndi það slæmu kvefi sem hrjáði mig, en komst að því eftir að ég kom heim að ég var líka með slæma ígerð í brjósti. Ég gat því eiginlega ekki notið ferðarinnar, þó alltaf sé gaman að hitta sitt fólk. Nú kemur William með mér, ég er við bestu heilsu, og ég er viss um að þessi ferð verður ánægjuleg.
Það er allt tilbúið, búið að pakka niður og ganga frá húsinu, og bara eftir að skipta um föt og vökva blómin.
Við verðum til húsa í leiguíbúð að Efstalandi 20, símanúmer hef ég ekki enn, því íslenska símakortið mitt er runnið út. Ég kaupi nýtt þegar ég kem til landsins.
Rebbarnir litlu verða að venjast því að fá engan kvöldskatt, því nú ætla ég að hætta að gefa þeim. Þeir eru farnir að stálpast, og verða að læra að bjarga sér sjálfir.

20.6.11

Garðurinn í júní 2011


Sólarglæta í dag, eftir marga rigningardaga, svo ég púlaði í garðinum í fimm tíma.


  
Það vantar ekki gróðurinn.



"Steinhæðin" mín hefur er horfin í burknaskóg. Þeir vaxa villtir og sá sér allsstaðar.



  Allt er grænt, en minna um blóm. Það hefur verið svo blautt og sólarlaust.


Þegar e-coli skrekkurinn reið yfir ákvað ég að hætta að kaupa gúrkur og salat og þh. og keypti pakka af fræi í staðinn. Það verður greinilega einhver smá bið á því að ég geti farið að gæða mér á heimaræktuðu grænmeti.. 



Góður gestur í garðinum. Hér á bæ er engum mat fleygt. Grænmetisafgangar fara í þar til gerða tunnu, sem vonandi verður einhverntíman að gróðurmold. Annað fer í rebba. (Tess sá alltaf um þetta, en nú nýtur hennar ekki lengur við.)



Rebbarnir sem koma í mat til okkar eru yrðlingar síðan í vor, og það er gaman að horfa á þá veltast um og hnoðast eins og kettlingar, og elta hvorn annan á harðaspretti.  Tófumömmu hef ég ekki séð, en hún fylgist örugglega með þeim.



 Þeir eru báðir með "ljós" á rófunni.

4.6.11

Afhverju erum við ekki með hjól?

Eftir nokkuð strembinn dag í garðinum hófst umræða um hönnun okkar mannfólksins, og hvað betur hefði mátt fara. Ef William hefði hannað okkur værum við með hjól, og tvö hjörtu, því það væri skynsamlegt að hafa eitt til vara.  Ef ég hefði átt þátt í hönnuninni hefði ég bætt við "reboot" takka, og eins hefði ég haft takka til að auka brennslu eftir góða máltíð.

1.6.11

Af veðurfari

Hér hefur rignt svo til látlaust síðan við komum heim, og það er ekki bara rigning, heldur líka rok og kuldi. Ég hef sætt lagi við að komast í garðinn, svona á milli skúra. Þetta á við um Skotland, en í Englandi hefur verið þurrasta og heitasta vor í manna minnum. Svona er þessu nú misskipt. Nú er spáð skárra veðri hér á morgun og fram yfir helgi, svo kannske ég geti vígt stuttbuxurnar sem ég hafði ekki kjark til að láta sjá mig í í Frakklandi.
Næstu helgi verðum við með hund í fóstri, Rory. Hann var mikill vinur Tess, og því okkar líka. Eigendur hans, Eleanor og Craig, ætla að heimsækja son sinn í Newcastle.

23.5.11

Uglan mín

Við höfum nokkrum sinnum þurft að fara með veika eða slasaða fugla - og einusinni agnarlítinn íkornaunga - í Hessilhead Wildlife Rescue. Þar er þeim hjúkrað og komið á legg, og síðan sleppt. Ég ákvað að gerast styrktarfélagi, og borga uppihald fyrir einn "sjúklíng" á ári. Þetta er þvi uglan mín, Loudon. Hann hafði dottið úr hreiðri þegar hann var hálfsmánaðar gamall, gott fólk bjargaði honum og nú býr hann í  Hessilhead ásamt fimm öðrum uglu ungum, og stækkar ört. Þeim verður sleppt í skóginn kringum Hessilhead þegar þeir eru taldir geta séð um sig sjálfir, og eiga vonandi eftir að eiga langt og farsælt uglulíf.

Rok og rigning.

Heimferðin gekk að óskum, og við erum búin að hvíla okkur vel. Veðrið hefur verið afleitt síðan við komum heim, og mér er sagt að það hafi verið rigning allan tímann sem við vorum í burtu.
Hér eru myndir úr ferðinni:
https://picasaweb.google.com/elinjons1942/FRANCEMAY2011?authkey=Gv1sRgCPKj-t3oyOHSHQ&feat=directlink

16.5.11

Lokaball

Thad var heilmikil lokaveisla i kvold, allur hopurinn bordadi saman, margrettad, og sungid a fronsku vid undirleik eins thjonsins a hotelinu. Vid skemmtum okkur vel, en nu er eg ad pakka nidur og vid forum heim a morgun. 

14.5.11

Franskur matur

Fransmenn teljast godir kokkar, en vid erum ekkert serlega hrifin af matnum her. Hann er svosem i lagi, en ekki meira.  Thad er mikid um allskonar "tartar" - sem er hrar matur. William er tvisvar buinn ad lenda i ad panta ovart hrameti, lax og hamborgara. Og hann sem er vanur ad lata mig steikja allan mat i hel.  Svo er mikid um allskonar "mousse." Graenmetis urvalid a markadnum er geysilega girnilegt, en hvad fekk eg med kalfasteikinni i kvold? Graenmetis "mousse" svo eg hef ekki hugmynd um hvad eg var ad borda. Sja mynd.


Gaman

Heilsdagsferd i fyrradag, halfsdagsferd i gaer, fri i dag, heilsdagsferd a morgun, halfsdagsferd a manud. og heim a thridjud. Nog ad gera. Hef ekki sett inn myndir aftvi eg skil tolvuna eftir i safe thegar eg er utanhuss og sony myndavelin er ekki tengjanleg vid tolvuna. Mundi alltieinu eftir ad siminn minn er med bluetooth, svo nu aetla eg ad taka hann med i dag og taka mynd og millifaera i kvold. Mikid er nu gaman ad leika ser med dotid sitt!

10.5.11

Ferdasaga frh.

Vid erum komin a afangastad, og allt hefur gengid upp. Hotelid er notalegt - og thad er netsamband a herbergjunum. Umhverfid er geysi fallegt, og vid hlokkum til ad fara i skodunarferdir naestu daga. Thad var 24 stiga hiti i dag.  William getur valid a milli 47 shonvarpsrasa - a fronsku.

Ferdasaga

Eiginmadur minn gengur med axlabond - med malmklemmum. I oryggishlidum a flugvollum fer allt i gang. Severe warning. Hann tekinn til hlidar og thukladur hatt og lagt, og svo settur i gegnumlysingu. Thetta ergir hann afskaplega mikid, svo hann er i vondu skapi i langan tima a eftir. Eg aetla ad leita ad axlabondum med plast klemmum og gefa honum adur en vid forum i naesta ferdalag.

9.5.11

Tilbúin til brottfarar

Búið að pakka niður, og búið að ganga frá öllu, innan dyra og utan. Bara eftir að skipta um föt og setja á sig andlit. Mikið verður hressandi að skipta um umhverfi, kanna nýjar slóðir og sjá tilveruna úr smá fjarlægð. 

Ef tæknin gengur upp hjá mér ætti ég að geta bloggað í ferðinni. 

5.5.11

Garðálfur

Ég stóðst ekki freistinguna þegar ég sá hann í gær í kjörbúðinni þar sem við kaupum venjulega í matinn. Hann sat þar á neðstu hillu  innanum ýmsar garðvörur, svo sem pöddueitur og rósaáburð. Ég veit að svona garðskraut tels gamaldags, en mér finnst hann afskaplega vinalegur. Hann heldur á lítilli lugt, og það er sólarnemi á afturendanum á honum sem hleður batterí, og það kviknar á lugtinni  þegar dimmir.